Pistlar

Um tíundi hver íbúi á fundi á Hólmavík

7.11.2002

Í gærkvöldi hélt ég hressilegan spjallfund á Hólmavík. Fundurinn stóð svo sannarlega undir nafni og var geysilega fjölmennur. Segja má að sem svari tíundi hver íbúi Hólmavíkur hafi mætt til fundarins, eða á milli 40 og 50 manns.

Fundurinn stóð svo sannarlega undir nafni sem hressilegur. Eftir framsöguræðu opnaði ég fyrir fyrirspurnir og umræður og tók fjöldi fólks til máls. Mörg mál báru á góma. Byggðamálin voru vitaskuld mönnum hugleikin. Athyglisvert var hve margir ræddu um fjarskiptamál og stöðu þeirra. Krafan er um hraðari uppbyggingu á þessu sviði.

Þessi fundur var sérlega uppörvandi og skemmtilegur og raunar í takti við aðra þá fundi sem ég hef efnt til.

Aðallega hef ég þó verið að fara um á vinnustöðum. Mér þykir sennilegt að ég hafi heimsótt einhverja hundruði vinnustaða á ferðum mínum í kjördæminu undanfarnar vikur á mánuði. Þetta hafa verið skemmtilegar heimsóknir sem hafa kallað fram miklar umræður og fært mér mikinn fróðleik. Þarna hefur gefist frábært tækifæri til þess að ræða við fólk og kynnast skoðunum þess. Fyrir það er ég þakklátur og finnst hafa verið einkar lærdómsríkt að eiga tækifæri á þessum skoðanaskiptum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.