Bráðfjörugur fundur á Bifröst
Í gær var ég á afar vel sóttum og bráðfjörugum fundi í Viðskiptaháskólanum í Bifröst í Borgarfirði. Fundurinn var haldinn í kaffistofunni nýju í skólanum og var sóttur af nemendum og kennurum. Í upphafi flutti ég nokkur orð, en síðan tóku við fyrirspurnir, af ótrúlega fjölbreyttu tagi.
Menn spurðu um efnahagsmál, afstöðuna til Evrópusambandsins, prófkjörið, um stöðu Íslands almennt í alþjóðasamfélaginu, ríkisábyrgðir, landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál, fiskveiðistjórnun og mjög margt fleira. Spurningarnar voru mjög hnitmiðaðar og gáfu mikið tilefni til margs konar umræðu. Fyrir vikið stóð fundurinn all nokkurn tíma. Og umræðurnar voru fjörmiklar og kröftugar.
Þetta var sérlega ánægjulegur fundur og einkar gaman að ræða við svo öflugan hóp sem var vel heima í þeim málum sem við ræddum
Á leið til Hólmavíkur
Nú er ferðinni heitið til Hólmavíkur. Þar ætla ég að halda fund á Café Riis, annað kvöld, miðvikudaginn 6. nóvember nk. Hefst fundurinn kl. 20.30
A öðru leyti hef ég ekki haldið marga almenna fundi í þessari prófkjörslotu. Fremur hef ég lagt áherslu á að fara um vinnustaði og ræða við fólk í starfsumhverfi þess. Þannig hef ég getað hitt að máli ótölulegan fjölda fólks vítt og breitt um kjördæmið. Þetta hafa verið fróðlegar heimsóknir og ánægjulegar og ætlun mín að halda þeim áfram.
Þannig hef ég líka unnið á þingferli mínum. Ég hef lagt mikla áherslu á heimsóknir á vinnustaði allt kjörtímabilið. Ég finn að fólk kann vel að meta þetta og fyrir það er ég þakklátur.
