Pistlar

Á ferð og flugi

30.10.2002

Undanfarnar vikur hef ég ferðast mikið og skipulega um allt hið nýja kjördæmi Norðvesturkjördæmi. Þar hef ég fengið kost á að hitta að máli ótölulegan fjölda fólks, vítt og breitt um svæðið, konur og karla, fólk á öllum aldri og sem fæst við hina margbreytilegustu hluti. Þetta hefur þess vegna verið sérlega ánægjulegur tími og upplýsandi um það margbreytilega starf sem hér er unnið.

Sjálfur hef ég fyrst og fremst einbeitt mér að heimsóknum á vinnustaði. Þar hittir maður fyrir fjölda fólks í réttu umhverfi þess. Áralöng reynsla mín sem þingmaður segir mér að þar verða umræðurnar hreinskiptastar og endurspegla best það sem fólk er að velta fyrir sér. Þess vegna hefur mér alltaf þótt þessar heimsóknir afar dýrmætar og lærdómsríkar.

Hressilegur fundur

Á mánudaginn (28 október) var ég í nokkrum vinnustaðaheimsóknum á Ísafirði og fór svo á fund með nemendum míns gamla skóla, Menntaskólanum á Ísafirði. Þetta var sérlega skemmtilegt. Nemendurnir voru mjög lifandi og spurðu afdráttarlausra spurninga. Alveg eins og maður vill að áheyrendur séu.

Um kvöldið ók ég síðan suður á bóginn til þess að geta farið um Borgarnes á vinnustaði. Þar var sömu sögu að segja. Maður kynnist stöðugt nýjum hlutum, nýjum viðhorfum og kynnist því sem verið er að fást við.

Í dag miðvikudag er ferðinni heitið um Akranes og síðan kjölfarið á gamalkunnar slóðir á Sauðárkróki. Þar hafa menn óskað eftir því að ég héldi fund, sem ég hyggst gera á fimmtudagskvöldið á Kaffi Krók og kalla hann í auglýsingunni "Hressilegan rabbfund". Þar langar mig til að menn geti spjallað óþvingað og óformlega og rætt málin hispurslaust.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica