Pistlar
Kosningaskrifstofa opnuð
Kosningaskrifstofa mín vegna prófkjörsins sem framundan er verður opnuð að Aðalstræti 9 á Ísafirði ( verslunarhúsnæði Pólsins) í dag kl. 17 til 19. Þegar skrifstofan verður opnuð verða réttar tvær vikur til prófkjörsdags, en prófkjörið fer fram 9. nóvember næst komandi. Fram að þeim tíma verður hægt að kjósa utankjörfundar víða í kjördæminu en einnig í Valhöll, skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Til að byrja með verður skrifstofan opin virka daga frá kl. 17 til 19 og um helgar frá kl. 14 til 16. Gera má ráð fyrir að opnunartíminn lengist þegar nær dregur prófkjörsdegi.
Ég kaus að hafa aðeins eina prófkjörsskrifstofu. Vildi ég með því meðal annars undirstrika að nú förum við að starfa í einu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi. Valdi ég skrifstofunni stað á Ísafirði.
Síminn á skrifstofunni er 456-5188. Netfang er studningsmenn@ekg.is
Ég vil starfa með fólki og fyrir fólk
Gaman væri að sjá sem flesta á skrifstofunni við opnunina og næstu daga. Við heitum því að þar verður gott og jákvætt andrúmsloft - og alltaf heitt á könnunni. Framundan verður nóg að starfa.
Undanfarið hef ég farið víða um kjördæmið og kynnst mörgu góðu fólki. Ég hef farið í margar heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir. Þetta hefur verið afar lærdómsríkur tími sem skilur margt jákvætt eftir, kveikir hugmyndir, opnar manni nýjan heim. Þannig hef ég líka áhuga á að starfa, með fólki og fyrir fólk.
Ánægjulegt er að prófkjörsvinna frambjóðenda hefur öll farið fram á jákvæðum nótum, eins og gera mátti ráð fyrir. Menn eiga að hafa í huga að prófkjörið er ekki barátta andstæðinga. Við erum félagar og flokkssystkin. Aðalatriðið er að allt gangi því vel og drengilega fyrir sig þannig að við getum háð samhenta baráttu að prófkjöri loknu í þágu sjálfstæðisstefnunnar og til hagsbóta fyrir kjördæmið og landið allt.
Til þess stendur minn vilji svo sannarlega og ég veit að um það erum við frambjóðendurnir tíu öll sammála
