Pistlar

Hefur þú neistann?

30.9.2002

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í hinu nýja Norð - Vesturkjördæmi fundaði nú um helgina. Fundurinn var fjölsóttur og fundarmenn komu alls staðar að úr kjördæminu. Helsta verkefnið var að taka ákvörðun um með hvaða hætti framboðslisti okkar yrði ákveðinn. Afgerandi niðurstaða fékkst og nú liggur fyrir að prófkjör verður haldið 9. nóvember næst komandi.

Í ræðu sem ég flutti á fundinum lýsti ég því yfir með formlegum hætti í hóp þessara trúnaðarmanna flokksins að ég sæktist mjög ákveðið eftir áframhaldandi þingmennsku. Ég hef verið fyrsti þingmaður Vestfjarða síðustu átta árin og reynt sem slíkur að leggja mig allan fram að við störf mín. Það er því eðlilegt að ég óski eftir öruggu sæti á framboðslistanum.

Hefur þú neistann

Undanfarnar vikur hefur oft komið upp í hug minn lítið atvik sem gerðist fyrir um tólf árum, þegar ég var að leggja af stað í prófkjörsundirbúning í Vestfjarðakjördæmi. Einn þeirra sem ég hitti að máli var gamall og góður vinur minn, Matthías Guðmundsson á Þingeyri, sem ég sótti stundum ráð til, fyrr og síðar. Eftir að hafa rætt málin dálitla stund sagði hann formálalaust: "Hefur þú neistann"? Ég hváði, áttaði mig ekki alveg hvað hann væri að fara, en þegar hann endurtók spurninguna, færðist ég í aukana og eftir nokkra stund greip minn gamli vinur af mér orðið og líkt og svaraði sinni eigin spurningu. "Jú þú hefur neistann".

Þetta þótti mér vænt um og ég held að hann hafi í rauninni með þessum fáu orðum meitlað betur lýsingu á hlutskipti stjórnmálamannsins en mörg orð hefðu getað. Stjórnmálin eru krefjandi, þau eru hugsjón, en þau krefjast líka þolinmæði.

Í stjórnmálum af alhug

Það er ekki nóg að hrópa á torgum. Menn þurfa að vera tilbúnir til þess að þumlunga málum áfram, í rétta átt þannig að það leiði menn til niðurstöðu. Þetta er oft sá hluti stjórnmálastarfsins sem vanþakklátastur er, en er hins vegar óhjákvæmilegur, ætli menn að ná árangri.

Þess vegna er mikilvægt að takast á við stjórnmálastarfið af alhug til þess að vinna að framfara og hugsjónamálum, svo um muni. Sjáldnast eru átakalínurnar í stjórnmálunum þó í raun svart hvítu. Stjórnmálamenn standa nær aldrei frammi fyrir tveimur auðveldum kostum, eða svörtu og hvítu. Oft þurfa menn einfaldlega að velja úr tveimur mis slæmum eða mis góðum kostum.

Þetta er stundum erfitt að útskýra. Menn vilja tafarlausar lausnir og stundum hafa fjölmiðlar tilhneigingu til þess að draga upp mjög einfalda mynd af veruleikanum. Fyrirsagnastílinn er það stundum kallað. Slíkt getur stundum verið skemmtilegt aflestrar, en lýsir lítt raunveruleikanum. Hann er einatt flóknari og kannski ekki alveg eins spennandi!

Reynslan kennir

Reynsla mín, til dæmis sem formaður tveggja krefjandi þingnefnda, Samgöngunefnd Alþingis og Sjávarútvegsnefnd hefur fært mér mjög heim sanninn um þetta sem ég hef verið að lýsa. Svipaða reyndlu hef ég fengið í öðru því forystustarfi sem mér hafa verið falin á öðrum vettvangi, svo sem eins og í Ferðamálaráði, þar sem ég gegni nú formennsku. Við slíkar aðstæður reynir hins vegar á menn og þær aðstæður færa manni dýrmæta reynslu.

12 ára reynsla af þingmennsku hefur kennt mér margt; þó svo að ég teljist varla hniginn að árum, 46 ára maðurinn!!! En vonandi hefur þessi reynsla gert mig hæfari til þess að takast á við öll þau krefjandi störf og sinna þeim fjölbreytilegu hliðum sem á þingmennskunni eru.

Hafðu samband

Mestu forréttindi þingmanna hef ég alltaf talið vera að fá tækifæri til þess að eiga orðastað við allt það fólk sem starfið býður upp á. Þannig lærir maður mest og þannig kvikna flestar hugmyndirnar. Reynsla mín undanfarin misseri af því að kynnast störfum fólks í hinu nýja kjördæmi hefur líka fært mér heim sanninn um þá miklu fjölbreytni sem er til staðar.

Þess vegna langar mig til þess að horfa fram á veginn og taka þátt í því margvíslega mótunarstarfi sem nú á sér stað. Þar hafa stjórnmálamenn hlutverki að gegna, í samvinnu við aðra íbúa, með það eitt að markmiði að auka framfarir og bæta hag íbúanna.

Þetta er meginástæða þess að ég sækist eftir endurkjöri sem þingmaður. Ég legg fram reynslu mína og vilja og vonast til þess að eiga gott samstarf við nýja umbjóðendur, svo sem ég hef átt við gríðarlegan fjölda fólks á Vestfjörðum og utan þeirra.

Þessi heimasíða, sem nú hefur verið opin um nokkra hríð er einmitt hugsuð sem nýr vettvangur til slíkra samskipta. Reynslan fram til þess hefur verið góð og margir hafa haft við mig samband í framhaldi af því sem þar hefur verið sagt, eða af öðru tilefni. Þetta tilefni núna vil ég því nýta til þess að hvetja sem flesta til þess að hafa við mig samband, láta í ljósi skoðanir sínar og stofna þannig til umræðna sem vonandi geta orðið til góðs.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica