Dauð hugmynd - Útförin auglýst síðar
Sú hugmynd að sameina beri Orkubú Vestfjarða fyrirtækjunum Norðurorku á Akureyri og RARIK, hefur fengið hinar verstu viðtökur. Skammt er að minnast þess er iðnaðarráðherra reifaði þessa hugmynd þremur dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þetta útspil kom okkur stjórnarliðum gjörsamlega í opna skjöldu og við brugðumst illa við, svo ekki sé nú meira sagt. Í viðtali við Svæðisútvarp Vestfjarða lýsti ég mig strax afar andsnúinn þessari hugmynd.
Enn var þó málinu haldið áfram. Þau tíðindi hafa hins vegar klárlega gerst núna að enginn leið er að ímynda sér annað en að málið sé dautt. - Útförin verður hins vegar auglýst síðar.
Orð skulu standa
Þegar ríkið keypti hlut sveitarfélaganna á Vestfjörðum í Orkubúi Vestfjarða var því slegið föstu og greypt í samningana að OV starfaði sem sjálfstæð eining á meðan óbreytt raforkulög giltu. Iðnaðarráðherra lýsti því yfir á Fjórðungsþingi Vestfirðinga nú um helgina að þetta ákvæði eins og önnur ákvæði samningsins yrðu virt. Þetta kom ekki á óvart. Núverandi stjórnvöld eru ekki þekkt að öðru en því að virða gerða samninga. Það innsiglaði ráðherrann sem sé á Fjórðungsþinginu nú um helgina.
Nú er staðan sú að raforkulögunum hefur ekki verið breytt. Guð einn veit hvort, hvenær, eða þá hvernig að því verður staðið. Á meðan, er í rauninni um tómt mál að tala að Orkubúið starfi ekki áfram sem sjálfstæð eining. Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna tekur af öll tvímæli og iðnaðarráðherra hefur innsiglað með orðum sínum á Fjórðungsþingi að það samkomulag verði virt.
Skýrir friðarskilmálar
Enn er þess að geta að ráðherrann undirstrikaði það mjög á Fjórðungsþinginu að þessi mál vildi hún vinna í sem mestri og bestri sátt við Vestfirðinga. Þetta er gríðarlega mikilvæg yfirlýsing. Fyrir okkur er sjálfgefið að taka ráðherrann á orðinu og freista þess að ná niðurstöðu um málið á þeim grundvelli. Það er öllum ljóst að enginn sátt verður um það við Vestfirðinga að draga úr umsvifum Orkubúsins á Vestfjörðum. Ég orðaði það þannig í ræðu sem ég flutti á þinginu að lokinni framsögu ráðherrans að friðarskilmálar okkar Vestfirðinga hlytu að vera þeir, að ekki yrði raskað þessari mikilvægu starfsemi sem Orkubúið stæði fyrir hér vestra.
Þetta sjónarmið innsiglaði þingið síðan með ályktun sinni þar sem skorað er á ráðherrann að falla frá áformum sínum um sameiningu RARIK, OV og Norðurorku með höfuðstöðvar á Akureyri. Það er því óhætt að segja að línur hafa mjög skýrst við þessar umræður á Fjórðungsþinginu sem var haldið í Bolungarvík um síðustu helgi.
RARIK stolið?
Um svipað leyti og við vorum að ræða okkur í gegn um þessi mál fyrir vestan urðu tíðindi suður á Selfossi þar sem sunnlenskir sveitarstjórnarmenn ræddu orkumálin á aðalfundi samtaka sinna. Formaður iðnaðarnefndar Alþingis, Hjálmar Árnason flokksbróðir iðnaðarráðherrans ræddi hugmyndir um sameiningu umræddra orkufyrirtækja og ögraði sunnlendingum með þeim orðum að verið væri að láta Norðlendinga stela RARIK. Hann ræddi þann möguleika að suðurhluti RARIK sameinaðist Suðurorku, sameiginlegu orkufyrirtæki Sunnlendingafjórðungs. Félagi minn Árni Ragnar Árnason benti líka á að nauðsyn þess að fleiri fyrirtæki en nú ættu aðkomu að orkumálunum.
Eftir þessa yfirlýsingu formanns iðnaðarnefndar Alþingis er ómögulegt að ímynda sér að hugmyndir um að sameina RARIK, Orkubúinu og Norðurorku eigi sér frekari lífsvon, í óbreyttri mynd. Það er alveg ljóst að allt er í rauninni til umræðu og fullkomin ástæða til þess að skoða málin opnum huga.
Sunnlenskir sveitarstjórnarmenn hvöttu bókstaflega til þess að stofnað yrði fyrirtæki á orkusviði sem næði yfir Suðurnes og Suðurland.
Gjörbreytt mynd
Eftir þessi tíðindi helgarinnar er augljóst að menn verða að fara að hugsa þessi mál alveg upp á nýtt. Nú blasir við að menn á Suðurlandi og á Suðurnesjum fara að ræða við yfirvöld orkumála um hugmyndir sínar. Þær útiloka sjálfkrafa upphaflegar hugmyndir iðnaðarráðherra.
Við verðum hins vegar á Norð - Vestursvæðinu að skoða okkur um. RARIK án Suðurlands er gjörbreytt fyrirtæki. Á okkar svæði starfar Orkubú Vestfjarða, öflugt, vel rekið fyrirtæki með fullbúnar stjórnunareiningar. Þar eru líka til staðar sterkar starfsstöðvar RARIK, mikil þekking og gott fólk.
Fjórðungsþing Vestfirðinga ályktaði um það að rökrétt væri að þetta svæði næði saman um rekstur sjálfstæðs orkufyrirtækis. Var á það bent að umdæmi RARIK á Norðurlandi Vestra og Vesturlandi starfi að mestu sem sálfstæðar einingar en fái þjónustu frá höfuðstöðvunum í Reykjavík, sem sé sú sama og höfuðstöðvar OV eru með í dag fyrir sitt veitusvæði.
Með öðrum orðum. Það blasir við algjörlega ný mynd. Sveitarstjórnarmenn vilja fara allt aðrar leiðir, en rætt hefur verið um. Í stað sameiningar, biðja menn um uppstokkun; sem aukinheldur sýnist mun rökréttari, en það sem um hefur verið rætt
Skrýtið verðmat
Hér er þó enn ótalið, hvernig sameiginlegur ársreikningur sameinaðs fyrirtækis RARIK, Orkubúsins og Norðurorku gæti litið út. Sé efnahagsreikningur fyrirtækjanna skoðaður og árrið 2000 lagt til grundvallar er ljóst að hlutur RARIK ætti að vera um tveir þriðju, eða 67,7 prósent, Orkubúið ætti að vera með um fjórðung, eða 25,8% en Norðurorka ætti örlítinn hlut, eða 6,4%. Þess vegna vekur það ekki litla undrun og er ekki ýkja trúverðugt þegar það spyrst út að verið sé að vinna með allt aðrar tölur í aðdraganda sameiningarhugmyndanna.
Umræða um breytingar getur verið góð, en hún má ekki standa endalaust yfir eða vera ómarkviss. Meðan á slíkri umræðu stendur ríkir óvissa, skaðleg óvissa. Umræðan þarf þess vegna að vera markviss og þar sem boðið er upp á að allir valkostir séu skoðaðir - en ekki bara sumir. Þó kappið sé mikið og viljinn til að komast í mark sem fyrst sé til staðar, er óþarfi að vinna eins og veðhlaupahestur sem bara sér fram fyrir sig, en er byrgð sýn til annarra átta. Ókosturinn við umræðuna upp á síðkastið er margvíslegur. Hún hefur valdið ugg starfsmanna og íbúa stórra svæða og vakið upp mikla tortryggni - ekki síst gagnvart stjórnvöldum. Kosturinn er hins vegar sá að hún hefur varpað ljósi að það er margt annað til í dæminu, en það sem áður hafði verið talað um. Þær hugmyndir sem hér hefur verið vakin athygli á er meðal þess. Vonandi leiðir því þessi umræða, þrátt fyrir allt og að lokum til farsællar niðurstöðu.
