Pistlar

Nýr vettvangur til þjóðmálaumræðu

1.8.2002

Sá sem starfar að stjórnmálum er þátttakandi í almennri þjóðmálaumræðu. Þetta á ekki síst við um alþingismenn. Þó svo að lagasetningarhlutverkið sé veigamesti þátturinn í starfi alþingismanna, er Alþingi líka málstofa. þar fara fram umræður af margvíslegum toga. Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir þýðingu þess að stjórnmálamenn - og umfram allt alþingismenn - eiga að vera virkir þátttakendur í þjóðmálaumræðunni. Það er þeirra hlutverk.

Þjóðmálaumræða með hefðbundnum hætti

Innan veggja Alþingis fer þessi umræða fram í umræðum þingmanna og birtist mönnum í mýflugumynd í frásögnum fjölmiðlanna. En umræðuvettvangurinn breytist sífellt. Dagblöðin hafa frá öndverðu verið slíkur vettvangur skoðanaskipta. Þar eiga menn þess kost að láta skoðanir sínar í ljósi, með greinaskrifum. Viðhorf manna koma og fram í fréttum dagblaðanna og annarra fjölmiðla. Á seinni árum hefur umræðan orðið æ meir áberandi í ljósvakamiðlunum. Með frelsi á þeim hluta fjölmiðlamarkaðarins opnuðust gáttir og almenn stjórnmálaumræða er örugglega fyrirferðameiri þar fyrir vikið en hún var áður. Valfrelsi manna og möguleikar á að velja og hafna, gerir það hins vegar að verkum, að menn eiga fleiri kosti.

Netið er hinn nýji vettvangur

Á allra síðustu árum hefur Netið orðið æ snarari þáttur í þeirri þjóðmálaumræðu sem einkennir samtíma okkar. Það hefur bókstarflega opnað nýjar gáttir. Stjórnmálamenn sem vilja vera virkir þátttakendur í þjóðmálaumræðunni verða því að hasla sér þar völl, með einum eða öðrum hætti.

Virkur þátttakandi í þjóðmálaumræðunni

Sá sem hér stýrir penna hefur mjög lengi verið virkur þátttakandi í þjóðmálaumræðunni. Fyrr meir sem áhugamaður um stjórnmál. Síðar sem áhugamaður um stjórnmál - og alþingismaður að atvinnu. Ég hef ekki einasta talið það skyldu mína. Heldur - og miklu fremur; þátttaka mín í stjórnmálaumræðunni hefur verið liður í því að hafa áhrif á gang þessarar umræðu og niðurstöðu hennar. Þetta má meðal annars sjá með því að skoða mikið magn greina sem birst hafa eftir mig í blöðum. Á heimasíðunni hef ég reynt að draga saman þessar greinar þó mér sé ljóst að þær séu hvergi nærri tæmandi. Vonandi tekst mér að auka við þennan lista og bæta hann.

Það má telja rökrétt framhald af því að vera virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðunni að hasla sér völl á Netinu líka. Sjálfur hef ég að lang mestu leyti aðeins verið áhorfandi að þeim þætti umræðunnar. En nú kveð ég mér hljóðs á eigin heimasíðu.

Lífleg reglubundin skrif

Það er rétt að gera eina játningu strax. Og hún er þessi. Ég hef lengi hugleitt það hvort ég ætti að stíga þetta skref. Mér hefur verið það ljóst að því fylgir skuldbinding um virk greinaskrif á þessum vettvangi, til viðbótar við önnur skrif og umræður um þjóðmál. Mín niðurstaða nú er að ég hef áhuga á því að vera virkur þátttakandi í slíkum skrifum og legg því af stað með opnun þessarar heimasíöu.

Markmið mitt er að halda úti líflegum, reglulegum skrifum um hvaðeina það sem ég hef áhuga á að tjá mig um. Þannig er hægt að verða beinn þátttakandi í tafarlausri umræðu um mál sem höfða til manns hverju sinni. Þessi heimasíða sem hér birtist mun taka breytingum, eftir því sem fram vindur. Hér er í upphafi lagt upp með pistla, birtingu á greinum úr blöðum, tilvísunum í þingmál mín og ræður á Alþingi. En áfram verður haldið veginn og heimasíðan þróuð.

Virk þátttaka í umræðunni

Netið er vettvangur til þess að tryggja betur gott samband við lesendur. Það er líka leið til þess að lesendur fái sem besta innsýn í skoðanir skrifara. Það er í anda þess sem ég hef reynt að vinna sem stjórnmálamaður. Það er að vera virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðunni með undanbragðalausri þátttöku í þingumræðum, með skrifum í blöð og tímarit og með því að láta skoðanir mínar heyrast í ljósvakamiðlunum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.