Pistlar

Lifandi dauð - 1.10.2009

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur"Gagnvart öllu þessu stendur ríkisstjórnin sem brothætt skel; utan um ekki neitt. Lífsneistinn hefur slokknað og hún veit að erindi hennar við þjóðina er á þrotum. Hún lifir og er örugglega ekki á förum. En hún er þarna í fullkominni erindisleysu, barin áfram undir hótunum forsætisráðherrans, lífsgleðin horfin og hugsjónaneistinn slökknaður." Þannig er komist að orði í pistlinum sem hér fer á eftir þar sem farið er yfir stöðu ríkisstjórnarinnar eftir að einn hennar öflugasti liðsmaður, Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra,  yfirgaf ríkisstjórnina.

Lesa meira

 

Afstaða okkar til Icesavemálsins - 4.9.2009

icesaveKjarni málsins er þá þessi. Ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi kolómögulegt mál sem langflestir þingmenn stjórnarliðsins voru þó tilbúnir að samþykkja umyrðalaust. Stjórnarandstaðan og uppreisnarmenn úr VG tóku hins vegar völdin og breyttu málinu til betri vegar; við afstýrðum í raun stórslysi. Eftir stendur hins vegar afleitur samningur sem ríkisstjórnin ein getur borið ábyrgð á. Vandamálið sem við var að glíma var ekki bara Icesavemálið sjálft, heldur ekki síður samningurinn sjálfur, sem er ljóst að var algjört klúður. Ábyrgðinni á því klúðri getur ríkisstjórnin ekki vísað á neina aðra. Ríkisstjórnin ber sjálf ábyrgð á því klúðri sínu, skuldlaust og án nokkurs vafa. Niðurstaða okkar sjáflstæðismanna að sitja hjá var því við þessar aðstæður rökrétt Lesa meira
 

Sögulegar kosningar að baki - 29.4.2009

KosningarHvernig sem á málin er litið voru nýliðnar kosningar sögulegar. Vinstri sveiflan er sú mesta sem við höfum séð. Sjálfstæðisflokkurinn beið sinn mesta kosningaósigur. Einn stjórnmálaflokkur þurrkaðist út og annar kom fjórum mönnum á þing. Þetta er kjarni þess máls sem fjallað verður um í þessum pistli. Farið verður yfir helstu drætti kosningaúrslitanna, annars vegar á landsvísu og síðan sérstaklega í Norðvesturkjördæmi. Loks er athyglinni beint að þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem standa nú yfir og það fyllyrt að þær leiði til stjórnarsamstarfs Lesa meira
 

Við getum unnið okkur út úr vandanum - 5.2.2009

SkjaldarmerkiEfnahagsmál, hvalveiðimál og staðan í stjórnmálunum eru meðal þess sem farið er yfir í örstuttu máli, í þessari grein, sem byggir að all nokkru á umræðunum um stefnu ríkisstjórnarinnar sem fram fór í gær, 4. febrúar.

Lokaorð þessa pistils eru eftirfarandi:

Við erum sannarlega í miklum vanda stödd. En við erum kraftmikil þjóð, með sterka innviði og höfum alla burði til að vinna okkur út úr þessum vanda. Þar munu þeir hins vegar valda, sem á halda. Þess vegna ríður á að vanda vel til verks. Ekki ganga fram með misvísandi skilaboð og kæruleysislegum útspilum sem rýra tekjumöguleika okkar og dýpka kreppuna. Við þurfum að hefja okkur upp yfir stundarríginn og sameinast um öfluga framfarasókn í þágu þjóðarinnar.

Lesa meira

 

Við höfum tekið markvisst á málum - 25.11.2008

ÞingsalurNúna kallar stjórnarandstaðan eftir því að þing verði rofið og efnt til kosninga sem fyrst á nýju ári. Þetta er fráleit krafa sem ekki mun þjóna hagsmunum þjóðarinnar. Öðru nær. Nú ríður þvert á móti á að við höldum áfram þeirri markvissu vinnu sem komin er áleiðis við að róa þjóðarskútunni úr brimskaflinum og á kyrrari sjó. Sú markvissa vinna sem ríkisstjórnin hefur haft frumkvæði að og stjórnarandstaðan hefur í mörgum tilvikum komið að hér á vettvangi þingsins, sýnir að við erum á réttri leið, þó að við vitum öll að mikið verkefni er eftir. Það er einmitt þess vegna sem það er óskynsamlegt að bæta pólitískri óvissu ofan á efnahagsleg vandræði. Þegar búið er að setja strikið og við vitum hvert við viljum stefna, er ekki mikil glóra í því að stökkva frá stýrinu og láta kylfu ráða kasti, eins og tillaga stjórnarandstöðunnar felur í sér.

Þannig komst ég að orði í ræðu sem ég flutti í gær, mánudaginn 24. nóvember í umræðum um vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar. Hér á eftir fylgir ræða mín og nokkur viðbót, þar sem ég geri öllu nánar fyrir aðdraganda fjármálakreppunnar og þeim tækifærum sem við höfum til uppbyggingar í atvinnulífinu og lúta sérstaklega að sprota og nýsköpunarstarfsemi.

Lesa meira

 

Rétturinn til að nýta eigin fiskistofna - 14.9.2008

Þorskastríð„Í þorskastríðunum börðumst við Íslendingar fyrir þeim rétti að nýta okkar eigin fiskistofna. 200 mílna efnahagslögsaga okkar er mikil gullkista og með yfirráðum yfir henni tókumst við mikla ábyrgð á herðar. Auðlindinni verðum við að skila til komandi kynslóða ekki lakari og helst betri en hún er í dag. Það viðfangsefni er ef til vill þorskastríð dagsins í dag, enda þó við eigum að fara mjög sparlega með orðið, svo ekki falli skuggi á dáðir þeirra manna sem unnu svo mikil afrek á sínum tíma. Vissulega hefur okkur gengið misjafnlega að byggja fiskistofnana okkar upp – stundum miður en í öðrum tilvikum prýðilega og þar má nefna ýmis dæmi, svo sem síld eða ýsu. Sá árangur sem við höfum þó náð hefði aldrei fengist ef við hefðum deilt miðunum við landið með öðrum þjóðum. Þannig sjáum við í raun best hversu miklu máli útfærsla landhelginnar skipti og hefur átt mikinn þátt í velsæld þjóðarinnar síðustu áratugi.“

Þannig kemst ég að orði í viðtali sem Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður tók við mig og birtist í blaði sem helgað var 12 mílna útfærslunni. Blaðinu var dreift með Morgunblaðinu.

Lesa meira

 

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica