|
Við sem búum á landsbyggðinni þekkjum vel varnarbaráttu undanfarinna ára og áratuga, harða baráttu oft á tíðum, sem að öllum líkindum á eftir að harðna á næstunni. Ekki er erfitt að álykta að áherslur margra stjórnmálamanna á næstu misserum verði í enn ríkara mæli á höfuðborgarsvæðinu. Því er enn meiri þörf á öflugum fulltrúum af landsbyggðinni. Mönnum sem í krafti þekkingar sinnar og reynslu þekkja vel til hagsmuna og þarfa hinna dreifðu byggða. Einar Kristinn uppfyllir þær kröfur.
Það ætti öllum að vera ljóst mikilvægi þess að hafa ráðherra í kjördæminu, það hefur reynslan kennt okkur. Verði Sjálfstæðisflokkurinn í þeirri aðstöðu eftir kosningar að taka þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar, er Einar Kristinn líklegastur frambjóðenda í þessu kjördæmi til að skipa stól ráðherra.
Krafa og umræða um endurnýjun á Alþingi, má ekki verða til þess að glata traustu og góðu fólki með reynslu og þekkingu á þjóðmálum.
Ég tel því að framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi verði best skipaður með Einar Kristinn í 1. sæti.
Adolf H. Berndsen framkv.stjóri á Skagaströnd.
|