|
Aðeins einn frambjóðendanna er núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson. Hann býður sig fram í fyrsta sæti listans og ég tel farsælt fyrir kjördæmið að hann fái góða kosningu í forystusætið. Sem forseti sveitarsjórnar Skagafjarðar í tvö kjörtímabil hafði ég mjög góða reynslu af samstarfi við Einar Kristinn á ýmsum sviðum og treysti honum til allra góðra verka. Hann þekkir vel til alls kjördæmisins og hefur sýnt það bæði sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hann stendur vel undir ábyrgð.
Erfiðir tímar fara nú í hönd í samfélagi okkar, en einnig tímar ýmiss konar tækifæra. Endurskoða þarf siðferðilegt mat og móta þarf nýtt og réttlátt samfélag. Við þá vinnu þarf fólk með reynslu ásamt nýjum starfskröftum. Sagt hefur verið að gott sé fyrir einstaklinga að eiga bæði rætur og vængi. Það þarf listi Sjálfstæðisflokksins einnig að hafa og veitum Einari Kristni skýrt umboð til að leiða glæsilegan lista í Norðvesturkjördæmi.
Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ.
|