Önnur sjónarmið

Útflutningur jafnréttis - frá landsbyggðinni!

30.3.2006

Unglingar úr Þór sem tóku þátt í að kynna verkefniðHún er ótrúlega lífseig bábiljan um að engin bitastæð rannsóknar- þekkingarverkefni sem tengjast nútíma upplýsingasamfélagi sé hægt að vinna nema á höfuðborgarsvæðinu. Sífellt heyrast úrtöluraddir vegna hugmynda um að færa einhverja hluta starfsemi ríkisins og stjórnsýslunnar út á land og gildir þá einu hvort þar er verið að bridda upp á nýrri starfsemi eða hreyfa við eldri starfsemi. Vissulega getur slíkur tilflutningur og sköpun verkefna á nýjum stöðum verið vandasamur, en mörg dæmi eru um mjög vel heppnaðar aðgerðir af því tagi. Upp á síðkastið hafa þessi mál verið í umræðunni enn á ný bæði vegna nýs framtaks í háskólamálum á Vestfjörðum og flutnings tiltekinnar starfsemi í Húnavatnssýslur og í Skagafjörð. Sú umræða er tilefni til að segja sögur – eins konar dæmisögur héðan frá Akureyri þar sem þessar línur eru skrifaðar.

Þessa dagana er verið að kynna efni um staðalmyndir kvenna í íþróttafréttum í að minnsta kosti fjórum Evrópulöndum, Noregi, Austurríki, Ítalíu og Litháen. Þetta efni er byggt á einhverri mestu og víðtækustu rannsókn sem gerð hefur verið á umfjöllun um íþróttir kvenna í Evrópu. Niðurstöðunum fylgir ítarlegt fræðslu og kynningarefni fyrir íþróttaþjálfara og íþróttafréttamenn á margmiðlunardiski, en slíkt form á kynningarefni á þessu sviði þykir bæði framúrstefnulegt og heillandi. Verkefnið heitir upp á ensku “Sports, Media and Stereotypes” og hefur verið skammstafað SMS-verkefnið. Allt er þetta kynnt undir þeim formerkjum að hér sé á ferðinni stórmerkilegt framlag til jafnréttismála og að það sé með áhugaverðari viðfangsefnum og niðurstöðum sem jafnréttisátak Evrópusambandsins styrkir.

Það sem hins vegar færri vita er að þetta jafnréttisverkefni er að stærstum hluta upprunnið og skapað hér á Akureyri. Það var Jafnréttisstofa (sem var flutt úr Reykjavík) sem hafði yfirumsjón með verkinu og  fólk þar hefur staðið í því að stýra og samræma þá fjölþjóðlegu starfsemi sem nauðsynleg er. Því til viðbótar var það Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri  sem stýrði rannsóknarþætti verksins. Gerð fræðslu- og kynningarefnis fyrir þjálfara og íþróttafréttamenn fór einnig fram á Akureyri, en ábyrgð á því bar Félagsvísinda- og lagadeild HA og vann það í góðu samstarfi við aðila hér á Akureyri sem kunna vel til verka. (Varla þarf að rifja upp að mörgum þótti á sínum tíma Háskólinn á Akureyri vera fráleit hugmynd.) Inn í þetta samstarf tengdist fjölmargt samstarfsfólk, en viðamest var samstarfið við Ásprent-Stíl. Þannig var dregin saman að einu alþjóðlegu verkefni þekking og hæfileikar í þessu bæjarfélagi sem er að skila alþjóðlegum árangri, niðurstöðum sem eru ekki síðri útflutningsvara en það ómengaða hágæðasjávarfang  sem við erum öllu vanari að hugsa um sem norðlenska útflutningsvöru.  Útflutningsverðmætin eru enda talsverð,  jafnvel þótt þau séu einvörðungu mæld í beinhörðum peningum. Í heild var þetta verkefni upp á  tæpar 25 milljónir króna á tveimur árum og greiðir Evrópusambandið 80% þess kostnaðar á móti 20% sem fjarmögnuð eru af ýmsum innlendum aðilum. Áætla má að um 60-70% af því fé hafi orðið eftir hér á Akureyri og er ekki óvarlegt að ætla að um þrjú ársverk hafi orðið til hér í bænum vegna verkefnisins.

Í sjálfu sér er áhugavert að Akureyri skuli með þessum hætti vera orðinn útflytjandi á jafnrétti og  geti gert sér mat úr því.  Stóru skilaboðin felast hins vegar í því hvernig ólíkir aðilar í bænum hafa unnið saman að því að virkja þekkingu og möguleikana sem eru hér eru til staðar.  SMS verkefnið er því miklu verðmætara fyrir Akureyringa sem áminning um hvað hægt er að gera í bæjarfélagi á landsbyggðinni,  en sem skapari nokkurra ársverka – sem þó skal ekki gert lítið úr.

                                                                                                            Birgir Guðmundsson lektor við HA og blaðamaður

 



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica