Önnur sjónarmið

Virðingin fyrir vinnunni, skilvísi og Guði

29.10.2010

Gunnlaugur StefánssonÍ lífi afa míns, Guðmundar Magnússonar f. 1887-1967, skipstjóra og útgerðarmanns, sem ólst upp á Bolungarvík og Ísafirði þar sem hann varð skipstjóri en fluttist til Reykjavíkur og gerði út Hermóð RE 200 árum saman, voru þrjár stofnanir kjölfesta utan heimilisins. Gömlu verbúðabryggjurnar, Útvegsbankinn og Dómkirkjan. Afi minn ól með mér virðingu fyrir vinnunni, skilvísi og Guði og þessar stofnanir voru eins og lífæðar þeirra gilda. Nú er höfnin sú orðin að skemmtigarði, bankinn gjaldþrota, enn stendur kirkjan á sínum stað en háir baráttu um tilveru sína og framtíð.

Mér varð hugsað til afa míns þegar Ingvar Gíslason, fyrrum þingmaður Norðlendinga í 27 ár og ég kynntist fyrst er ég var kjörinn á Alþingi árið 1978 nýorðinn 26 ára gamall, hafði samband við mig og lýsti áhyggjum sínum yfir aðförinni sem kirkjan þolir nú um daga. Hann rifjaði upp hve kristin trú og kirkja með athöfnum sínum og starfi hefði verið þjóðlífinu dýrmæt, alið á kærleikans gildum og ræktað virðingu í samskiptum.

Nú er þjóðlífið í uppnámi og virðingin fyrir verðmætum og góðum siðum á hverfandi hveli. Þá er vegið að kirkjunni úr mörgum áttum sem verið hefur þungamiðja þeirra gilda og verðmæta sem best hafa reynst þjóð um aldir. Gerð er tilraun til að úthýsa prestum og kristinni menningu úr reykvískum skólum, en á öldum áður var til barnaskóla stofnað af kirkjunni og prestarnir sáu um uppfræðsluna. Nú er er reynt með lævísum hætti að koma því inn hjá fólki að börnum stafi hætta af kristinni trú og þjóðin umber að kirkjugestir á leið í Dómkirkjuna til guðsþjónustu við setningu Alþingis eru grýttir. Oft var mótmælendum heitt í hamsi á Íslandi, en virtu alltaf heilagan griðarstað.

Stofnanir breytast, fara og koma. Það er gangur lífsins að mannanna verk eru breytingum undirorpin. En þráin eftir heill og velferð, öryggi og friði breytist ekki. Þess vegna hefur Guð verið samofinn í lífi þjóðar og haggast ekki hvað sem dagar bera í skauti sínu, og þjóðin notið af blessun í sið og verki og reynst best í blíðu og stríðu. Því er svo mikilvægt á umbrotatímum að rækta framtíðarsýn sem hefur í farteski gild verðmæti. Virðingin fyrir vinnunni, skilvísi og Guði voru fyrrum hornsteinar. Verður þessu fórnað og hvað kemur þá í staðinn til þess að varðveita og efla heill og velferð þjóðar?

Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica