Önnur sjónarmið

17.6.2010 : Hrafnseyri verður að finna varanlegt og sjálfbært menningarhlutverk

Svavar GestssonÍ hruninu mikla 2008 kom mörgum manninum í hug að það hafi verið misskilningur að þessi þjóð gæti lifað sjálfstæð í þessu landi. Hún ætti að sameinast Danmörku, ganga undir Noregskonung og að sjálfstæði hennar væri aðallega spurning um peninga. Þessi sorgarumræða er gengin yfir en sýnir hvað sjálfstæðið er tæpt nema við munum eftir að berjast fyrir því á hverjum einasta degi.. Besta afmælisgjöfin til Jóns Sigurðssonar er að reisa virðingu þjóðarinnar fyrir sjálfstæðinu og rækta skilning hennar á þýðingu þess. Lesa meira
 

28.4.2010 : Sterkt samfélag

Unnur Brá KonráðsdóttirUndanfarnir mánuðir hafa um margt verið erfiðir fyrir íslensku þjóðina. Við hrun bankanna féll sú ímynd að Ísland væri „stórasta land í heimi“ og að Íslendingar væru almennt séð hæfileikaríkari og betri en aðrir. Dómharka þjóðarinnar í eigin garð er mikil og hleypur með ýmsa í gönur. Vissulega var margt sem fór aflaga í samfélaginu síðastliðin ár en neikvæðni og hatur út í náungann eru ekki gildi sem æskilegt er að einkenni íslenskt samfélag. Lesa meira
 

13.12.2009 : Villifé

Eyþór ÁrnasonVið Eyþór Árnason hittumst í göngum norður í Skagafirði í haust. Hann var þarna á gamalkunnugum slóðum. Fæddur og uppalinn að Uppsölum í Blönduhlíð og faðir hans Árni Bjarnason fyrrverandi hreppsstjóri hafði fyrr meir verið fjallkóngur og sem þekkti hverja þúfu og stein. Ég var þarna staddur í umboði æskuvinar míns og félaga Agnars H. Gunnarssonar oddvita á Miklabæ; og í fyrsta sinn í göngum á þessum slóðum.

Þetta var dýrðlegur tími. Við komum göngumóðir og sveittir í gangnakofann og okkar beið hraukað veisluborð, sem fagnað var af þreyttum og sælum gangnamönnum. Það var þarna sem hugmyndin fæddist að því að véla Eyþór til þess að skrifa einn duggunarlítinn pistil fyrir mig á heimasíðuna. Líka af því að ég vissi að Eyþór er stílsnjall með afbrigðum og það geta menn séð með því að fara inn á bloggið hans.

 

Svo þekkti ég hann fyrir og vissi að hann myndi vera bóngóður og taka mér ljúfmannlega, eins og kynni mín voru líka af fólkinu hans, sem ég þekki einnig margt hvert. Og síðan skaðaði það nú ekki að minn gamli félagi úr leitunum þar nyrðra, hreppti nokkru síðar bókmenntaverðlaun sem kennd eru við skáldið okkar góða og þýða, Tómas Guðmundsson. Hér er síðan afraksturinn og þakkir færi ég Eyþóri Árnasyni frá Uppsölum fyrir skrifin.

Lesa meira
 

12.10.2009 : Viskan fyrir Vestan

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir"Sumir þeirra fulltrúa voru afar ákafir og óþreytandi í þeirri málafærslu sinni að koma þessu á laggirnar. Þannig eiga líka kjörnir fulltrúar að vera. Fyrir aðra gat þessi söngur á stundum verið þreytandi ekki síst þegar maður þurfti að heyra í fimmtugasta skiptið hversu frábærir Vestfirðirnir væru og allir möguleikarnir sem hægt væri að virkja ef verkefnið færi af stað. Jú, jú – við Sunnlendingar værum svo sem alveg ágætir en Vestfirðingar væru útsjónarsamir og hinn harðgeri partur þjóðarinnar" skrifar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í pistli um upphaf háskólastarfs á Vestfjörðum. Lesa meira
 

29.6.2009 : Að vinna saman - eða ekki

Guðmundur SteingrímssonKrafan um samvinnu ólíkra einstaklinga og hópa verður að byggja á þeirri grundvallarkröfu að á milli hópa og einstaklinga ríki virðing. Traust og virðing fauk almennt út um gluggann á Íslandi. Á þingi er hrópað „en hvað gerðuð þið!“ þegar framsóknarmaður stendur í pontu og gagnrýnir, jafnvel þótt viðkomandi sé nýr á þingi. Samfylkingarfólk er sakað um undirlægjuhátt og smjaður gagnvart Evrópu á kostnað þjóðarhags. Vinstri græn eru vænd um svik. Sjálfstæðismönnum er sagt að skammast sín. Lesa meira
 

 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.