Myndir úr starfi

Hér má sjá myndir úr starfi

 

Myndasafn

  • Fyrsta fleyið úr nýrri stöð Trefja

    Í tilefni þess að Trefjar ehf. hafa lokið smíði á fyrsta bátnum í nýrri skipasmíðastöð við Óseyrarbraut 29 í Hafnarfirði var klippt á borða þegar báturinn Veronica var færður út úr stöðinni. Fyrirtækið á einnig 30 ára starfsafmæli um þessar mundir svo tvöfalt tilefni var til hátíðahalda.

  • Aðalfundur Félags hrossabænda

    Félag hrossabænda hélt aðalfund sinn í Bændahöllinni 7. nóvember.

  • Matvælasmiðja Matís á Höfn

    Matís opnaði í nóvember vöruþróunarsmiðju á Hornafirði. Hún verður vettvangur frumkvöðla til að prófa sig áfram og útfæra hugmyndir sínar og hráefni þannig að úr verði fullbúin markaðsvara. Með þessu móti verður þeim kleift að kanna, án mikils tilkostnaðar og með liðsinni sérfræðinga Matís, hvort raunhæft og hagkvæmt sé að framleiða tiltekna vöru.

  • Aðalfundur LÍÚ 2008

    Landssamband íslenskra útvegsmanna hélt 69. aðalfund sinn 30. og 31. október á Hilton Nordica hótelinu. Þar afhenti vefari Þórarni Ívarssyni forsvarsmanni Veraldarvina Umhverfisverðlaun LÍÚ við upphaf fundarins. Veraldarvinir fá verðlaunin fyrir mikilvægt framlag við hreinsun strandlengju Íslands.

  • Ráðstefna Sjávarútvegsskóla Háskóla SÞ um sjálfbærni í sjávarútvegi

    Í tilefni af 10 ára afmæli Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna var efnt til ráðstefnu um sjálfbærni í sjávarútvegi dagana 24. og 25. október. Ráðstefnugestir komu víða að úr heiminum, einkum og sér í lagi frá löndum þar sem skólinn hefur látið til sín taka.

  • Aðalfundur LS 2008

    Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda var haldinn 23. og 24. október í Turninum í Kópavogi. Venju samkvæmt ávarpaði vefari fundarmenn og svaraði fyrirspurnum að því loknu.

  • Matvæladagur MNÍ

    Matvæladagur Matvæla og næringarfræðingafélags Íslands var haldinn 16. október undir yfirskriftinni Íslenskar matarhefðir og héraðskrásir. Venju samkvæmt voru verðlaunin Fjöreggið afhent við þetta tækifæri en það er veitt fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Að þessu sinni hreppti Ávaxtabíllinn Fjöregg MNÍ

  • Haustfundur HES, MAST, UST og ráðuneyta

    Haustfundur Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og ráðuneytum umhverfis, sjávarútvegs- og landbúnaðar var haldinn á Hótel Loftleiðum 14. og 15. október.

  • Haustfundur LK í Þingborg

    Á annað hundrað manns sótti fyrsta haustfund Landssambands kúabænda árið 2008. Fundurinn var haldinn var í Þingborg í Flóa. Þar flutti Þórólfur Sveinsson formaður LK framsögu fjallaði ítarlega um verðlags- og kjaramál sem og sölumál og framtíðarhorfur. Vefari ávarpaði fundinn, fór yfir stöðu mála og svaraði fyrirspurnum.

  • Kúfisksmökkun hjá Matís á sjávarútvegssýningunni

    Matís ohf. bauð gestum og gangandi að bragða á eðal kúfiski frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2008.

  • Merki fyrir íslenskar sjávarafurðir

    Í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna 2008 var kynnt merki fyrir íslenskar sjávarafurðir. Það vísar til íslensks uppruna afurðanna og ábyrgra fiskveiða. Heimilt verður að nota það á öllum mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Merkið má jafnframt nota á afla íslenskra fiskiskipa úr deilistofnum sem lúta heildarstjórnun.

  • Setning Icefish 2008

    Íslenska sjávarútvegssýningin 2008 var sett með látum þegar vefari hleypti af 140 ára gamalli fallbyssu til merkis um opnun sýningarinnar. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi og síðuhaldari héldu ræður við setninguna og kynntu sér svo eitt og annað í sýningarbásunum.

  • Þorskeldisráðstefna

    Um 150 gestir sóttu ráðstefnuna Cod Farming in the Nordic countries sem efnt var til 30. sept. - 1. okt. 2008 í aðdraganda Íslensku sjávarútvegssýningarinnar. Þar var fjallað um þorskeldi frá mörgum hliðum og m..a. nokkur verkefni á vegum AVS kynnt. Um helmingur gesta kom erlendis frá.

  • Aðalfundur Sf 2008

    Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 2008 var haldinn 26. september á Grand Hóteli. Eftir að formaður stjórnar kynnti ársskýrsluna og ráðherra ávarpað fundinn fluttu Björn Björnsson, Illugi Gunnarsson, Hermann Stefánsson og Kristján Þórarinsson erindi.

  • Sjávarútvegsklasi Vestfjarða

    Fimmtudaginn 11. september efndi Sjávarútvegsklasi Vestfjarða til ráðstefnu í Flókalundi undir yfirskriftinni: Er íslenskur sjávarútvegur að glata sérstöðu sinni? Vel var mætt til fundar og menn sammála um svarið við spurningunni væri NEI. Engu að síður væri nauðsynlegt að koma á íslensku umhverfismerki sem fyrst til að skerpa enn frekar á sérstöðunni.

  • Landsmót hestamanna 2008

    Landsmót hestamanna var haldið með glæsibrag á Hellu í byrjun júlí. Vefari tók m.a. þátt í hópreiðinni við setningu mótsins og að henni lokinni stóð ráðuneytið að móttöku með menntamálaráðuneytinu og Landsmóti ehf.

  • Ólafsdalshátíð

    Hátíðin var haldin í Ólafsdal í Gilsfirði í tilefni af því að 170 ár eru liðin frá fæðingu Torfa Bjarnasonar sem stofnaði þar og rak fyrsta búnaðarskóla landsins. Undirrituð var viljayfirlýsing milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og Ólafsdalsfélagsins um að félagið taki að sér umsjón jarðarinnar. Myndirnar tók Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða.

  • Málþing um lífrænan landbúnaður

    Landbúnaðarháskóli Íslands hélt málþing um lífrænan landbúnað í Norræna húsinu 16. maí 2008. Þar var reynt að varpa ljósi á ýmsar hliðar lífræns landbúnaðar og m.a. leitast við að svara spurningum um hvort lífrænar afurðir séu hollari en aðrar og hvort lífrænn landbúnaður sé valkostur á Íslandi?

  • Samráðsfundur um landnotkun og loftslagsbreytingar

    Samráðsfundur um landnotkun í tengslum við viðbrögð við loftslagsbreytingum var haldinn á Íslandi 7. - 9. maí. Fulltrúar ríkja sem hafa tekið á sig skuldbindingar samkvæmt Kyoto-bókuninni tóku þátt í fundinum auk boðsgesta frá alþjóðlegum samtökum, stofnunum og þróunarríkjum. Fundarmenn voru á níunda tuginn.

  • Vorráðstefna Matís og Mast

    Matur, öryggi og heilsa, var yfirskrift sameiginlegrar ráðstefnu á vegum Matís og Matvælastofnunar (MAST), sem fram fór á Hótel Hilton Nordica þann 16. apríl 2008. Á ráðstefnunni var leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna rekjanleiki matvæla verður sífellt mikilvægari, hvað felst í staðbundinni matvælaframleiðslu, hverjar eru helstu hætturnar tengdar matarsjúkdómum og hvað ný matvælalöggjöf Evrópusambandsins þýðir fyrir Ísland.

  • Skógarfundir á Hvolsvelli

    Mikið var um að vera hjá skógarfólki í fyrstu viku aprílmánaðar 2008. Haldin var fagráðstefna 3.-4. apríl og í kjölfar hennar efndu Landssamtök skógareigende til tveggja daga aðalfundar.

  • Aðalfundur LK

    Aðalfundur Landssambands kúabænda 2008 var settur á Hótel Selfossi 4. apríl að viðstöddu fjölmenni.

  • Ársfundur Veiðimálastofnunar 2008

    Ársfundur Veiðimálastofnunar var haldinn 27. mars og í kjölfarið var efnt til málþings um stöðu stórlax á Íslandi.

  • Ár kartöflunnar

    Landssamband kartöflubænda afhenti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrsta eintakið af uppskriftabæklingi sem gefinn er út í tilefni af „ári kartöflunnar". Bæklingurinn, sem inniheldur fjölda kartöfluuppskrifta, mun liggja frammi í matvöruverslunum án endurgjalds fyrir þá sem vilja kynnast nýjum hliðum á kartöflunni. Sigríður Bergvinsdóttir sá um útgáfuna og bjó til uppskriftirnar. Guðbjörg Ósk Sveinsdóttiir og Svanur Berg Jóhannsson afhentu ráðherra bæklinginn á veitingastaðnum Friðriki V á Akureyri 26. mars 2008.

  • Búnaðarþing 2008

    Búnaðarþing var sett 2. mars við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni. Við það tækifæri voru Landbúnaðarverðlaunin 2008 einnig afhent.

  • Food and Fun 2008

    Hátíðin Fóður og fjör var að vanda haldin með glæsibrag og að þessu sinni var lögð áhersla á nýjan norrænan mat - Ny nordisk mad eins og verkefnið heitir. Hátíðin var sett miðvikudaginn 20. febrúar í Norræna húsinu.

  • Eigið fé - kindur.is

    Föstudaginn 15. febrúar 2008 veitti síðuhaldari kindinni Grímu viðtöku. Hún er sú fyrsta sem fyrirtækið Eigið fé afhendir en því var formlega hleypt af stokkunum við þetta tækifæri. Hlédís Sveinsdóttir hugmyndasmiður þess og eigandi hyggst fá bændur víðs vegar um land til samstarfs og gefa fólki kost á að kaupa kind á fæti í fjárhúsum þeirra sem ganga til liðs við Eigið fé. Nánari upplýsingar fást á kindur.is.

  • Síldarsaga Íslendinga

    Í tilefni af útgáfu bókarinnar Silfur hafsins – gull Íslands – síldarsaga Íslendinga bauð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til móttöku í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 26. nóvember. Útgefendur notuðu tækifærið og færðu ráðherra fyrsta eintak bókarinnar.

  • Vestmannaeyjar nóv. 2007

    Í ferð til Vestmannaeyja um miðjan nóvember gafst gott tækifæri til að líta við í síldasöltun hjá Ísfélaginu og kanna hvað kraumar í pottum og pönnum Gríms kokks.

  • Hvannarlambakjöt er gott

    Á haustdögum bauð Matís ohf. ráðherra og Ingu Lind Karlsdóttur stjórnanda Íslands í dag að bragða á nýstárlegu lambakjöti, þ.e. af lömbum sem alin voru á hvönn í sumar.

  • Kynnisferð með Sambandi garðyrkjubænda

    Samband garðyrkjubænda bauð ráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis og starfsmönnum landbúnaðarráðuneytisins í vel heppnaða kynnisferð um garðyrkjustöðvar á Suðurlandi miðvikudaginn 5. september. Farið var yfir það helsta er lítur að greininni og komið við í gróðrastöðinni Storð í Kópavogi, kartöfluverksmiðjunni í Þykkvabæ, garðyrkjustöðina Jörfa á Flúðum, Flúðasveppum Espiflöt í Reykholti. Hvarvetna tóku staðarhaldarar hópnum með kostum og kynjum svo úr varð einstaklega skemmtileg og fræðandi ferð.

  • 40 ára afmæli Mógilsár

    Haldið var upp á fertugsafmæli Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá 31. ágúst 2007. Margt var um manninn og eftir nokkur hátíðarávörp og skemmtidagskrá Bjargræðiskvartettsins var efnt til fjöldasöngs, enda skógræktarfólk með eindæmum söngelskt.

  • Alþjóðlegt samráðsþing um jarðvegsvernd

    Alþjóðlegt samráðsþing um jarðvegsvernd var haldið á Selfossi 31.08.07 - 04.09.07. Meðfylgjandi myndir tók Magnús Hlynur Hreiðarsson við setningu þingsins.

  • Landbúnaðarsýning í Skagafirði

    Helgina 17. - 19. ágúst var haldin vegleg landbúnaðarsýning í Skagafirði, Sveitasæla 2007 í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Fjöldi fólks var við opnunina, þar sem m.a. Jóhann Már Jóhannsson söng nokkur lög.

  • Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands

    Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn á Egilsstöðum 17. – 19. ágúst. Á milli hátíðarávarpa og annarra fastra aðalfundarliða stóðu gestir upp, teygðu úr sér og tóku lagið í fjöldasöng.

  • Heimsókn í Hallormsstaðaskóg

    Fimmtudaginn 16. ágúst bauð Skógrækt ríkisins landbúnaðarráðherra í heimsókn í Hallormsstaðaskóg til að kynna sér starfsemi Skógræktar ríkisins. Fór ráðherra í reiðtúr um skóginn endilangan ásamt Jóni Loftssýni skógræktarstjóra, Níelsi Árna Lund, deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu og Þór Þorfinnssyni skógarverði. Áð var á fimm stöðum á leiðinni, þar sem starfsfólk Skógræktar ríkisins kynnti nokkur af helstu verkefnum stofnunarinnar. Í hádeginu var komið við á Hafursá þar sem heimafólk veitti ferðalöngum hrátt hangikjöt, fjallagrasarúgbrauð og fiskisúpu. Endað var í ketilkaffi og kleinum í neðstareit í Mörkinni.

  • HM íslenska hestsins

    Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Oirschot í Hollandi 6. til 12. ágúst sl. Landbúnaðarráðherra sótti mótið og afhenti m.a. eftirsóttasta verðlaunagripinn, tölthornið.

  • Kolviðarskógur

    Fmmtudaginn 14. júní voru fyrstu trén gróðursett í Kolviðarskógi á Íslandi. Upphaf verkefnisins var markað með gróðursetningu á stæðilegum birkiplöntum. Það gerðu fulltrúar bakhjarla verkefnisins þeir Einar K. Guðfinnsson ráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, Ingólfur Helgason forstjóri Kaupþings og Brynjar Stefánsson frá Orkuveitu Reykjavíkur ásamt forsvarsaðilum og stjórn Kolviðar. Við þetta sama tækifæri handsöluðu Guðfinna S. Bjarnadóttir formaður stjórnar Kolviðar og Sigríður Heiðmundardóttir formaður skógræktarfélags Rangæinga þjónustusamning, en félagið mun hafa umsjón með öllum skógræktarframkvæmdum á Geitasandi.

  • Sjómannadagurinn 2007

    Sjómannadaginn 3. júní 2007 var margt um að vera víðs vegar um land. Hátíð hafsins var t.a.m. haldin í Reykjavík líkt og undanfarin ár og skemmtu gestir sér hið besta. Ræðuhöld fóru fram í porti Hafnarhússins í skjóli fyrir veðri og vindum. Á Miðbakkanum var líf og fjör þar sem m.a. var hægt að skoða furðufiska, fara í siglingu með Sæbjörgu og fylgjast með kappróðri.

  • Opið hús hjá Landbúnaðarstofnun

    Landbúnaðarstofnun á Selfossi var með opið hús laugardaginn 2. júní 2007. Við það tækifæri hleypti ráðherra nýjum vef stofnunarinnar af stokkunum þar sem ógrynni upplýsinga er að finna. Fjölmargir gestir nýttu tækifærið og kynntu sér starfsemi stofnunarinnar.

  • Fiskistofa opnuð í Stykkishólmi

    Nýtt útibú Fiskistofu í Stykkishólmi var formlega tekið í notkun í 11. apríl 2007. Þetta er þriðja útibúið af fjórum sem opnuð verða utan höfuðborgarsvæðisins. Fiskistofa tók til starfa í Vestmannaeyjum og Höfn á síðasta ári og næst í röðinni er Grindavík. Fyrir voru útibú á Ísafirði og Akureyri. Fimm starfsmenn verða hjá Fiskistofu í Stykkishólmi.

  • Fiskneysla ungs fólks minnkar

    Niðurstöður rannsókna Matís ohf., Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og fleiri á fiskneyslu 17 -26 ára Íslendinga voru kynntar 19. mars 2007 í Víkinni - sjóminjasafninu í Reykjavík.

  • Útskrift úr Sjávarútvegsskóla Sþ.

    Sautján nemendur frá 14 löndum útskrifuðust úr Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna 6. mars 2007. Þeir sem voru lengst að komnir eru frá eyríkjunum Vanuatu og Tonga í Suður-Kyrrahafi. Þetta er níunda brautskráning frá skólanum og hafa 143 nemendur frá 24 löndum lokið námi.

  • Hrognavinnsla HB-Granda

    Laugardaginn 3. mars 2007 var farið í heimsókn til HB-Granda á Akranesi og hrognavinnslan skoðuð. Horfur eru á að takist að frysta um 3.500 tonn af loðnu á þessari vertíð hjá fyrirtækinu, sem er met með tilheyrandi verðmætasköpun.

  • VÖR - Sjávarrannsóknasetur við Breiðafjörð

    Á síðasta ári var Sjávarrannsóknasetrið VÖR stofnað í Ólafsvík. Markmiðið er að efla rannsóknir á lífríki Breiðafjarðar með það fyrir augum að auka vísindalega þekkingu á svæðinu og leita leiða til sem bestrar nýtingar á auðlindum þess. Sjávarútvegsráðherra skrifaði undir samning við VÖR sem felur í sér 6.000.000 kr. styrk frá sjávarútvegsráðuneytinu við setrið til að skjóta styrkari stoðum undir starfsemi þess. Í leiðinni var komið við á Fiskmarkaði Íslands í Ólafsvík þar sem landsins gagn og nauðsynjar voru rædd af krafti í kaffistofunni.

  • Food and Fun

    Matar og sælkerahátíðin Food and Fun var sett með viðhöfn á Hótel Nordica 21. febrúar 2007. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hleyptu hátíðinni af stokkunum með Jóni Karli Ólafssyni forstjóra Icelandair.

  • Íslenskukennsla fyrir erlent fiskvinnslufólk

    Föstudaginn 9. febrúar skrifaði sjávarútvegsráðherra undir samning við Fjölmenningarsetrið á Ísafirði, sem felur í sér að Fjölmenningarsetrið, í samstarfi við Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar, annast undirbúning og skipulagningu starfstengds íslenskunámskeiðs fyrir erlenda starfsmenn í fiskvinnslu á Íslandi. Fyrsta námskeiðið verður haldið hjá Íslandssögu á Suðureyri.

  • Ráðstefna á Akureyri og kynning á starfsemi H.A.

    Dagana 1. og 2. febrúar var haldin alþjóðleg ráðstefna í Háskólanum á Akureyri um áskoranir og tækifæri í alþjóðaviðskiptum með sjávarafurðir. Í kjölfarið efndu nemendur og kennarar í sjávarútvegs- og fiskeldisfræði við Háskólann á Akureyri og starfsmenn Matís og Hafrannsóknastofnunarinnar nyrðra til kynningar á starfsemi sinni.

  • Heimsókn í Þorlákshöfn 25. janúar 2007

    Sjávarútvegsráðherra heimsótti nokkur fyrirtæki í Þorlákshöfn fimmtudaginn 25. janúar. Í kjölfarið var efnt til tveggja funda. Annars vegar með Útvegsmannafélagi Þorlákshafnar og hins vegar var opinn stjórnmálafundur með áhugafólki um sjávarútveg og stjórnmál almennt. Heimsóknir sem þessar og fundir eru afar gagnlegir og til þess fallin að fá milliliðalaust upplýsingar, ábendingar og gagnrýni frá grasrótinni í greininni, sem á stundum hrósar ráðamönnum líka þegar það á við.

  • Fiskistofa opnuð á Höfn

    Útibú Fiskistofu á Höfn var formlega tekið í notkun 3. nóvember 2006. Þetta er annað útibúið af fjórum sem opnuð verða á næstu misserum utan höfuðborgarsvæðisins. Opnað var í Eyjum í vor og bætast Stykkishólmur og Grindavík í hópinn þegar fram líða stundir. Þrír starfsmenn hafa verið ráðnir á Höfn.

  • Fyrsta langreyður ársins 2006

    Hvalur 9 kom með fyrstu langreyð ársins að Hvalstöðinni í Hvalfirði að morgni sunnudags 22. október. Skepnan var 68,2 fet á lengd og 50-60 tonn að þyngd.

  • Afhjúpun minnisvarða um strand tundurspillisins Skeena

    Í seinni heimsstyrjöldinni strandaði stolt kanadíska flotans, tundurspillirinn Skeena við Viðey. Giftusamlega tókst að bjarga 198 af 213 manna áhöfn og átti Einar Sigurðsson útgerðarmaður í Reykjavík stærstan þátt í því hve vel tókst til. Hann vann einstaka hetjudáð og var minnisvarði um strandið afhjúpaður 2. ágúst 2006, þegar ein öld var liðin frá fæðingu Einars.

  • Sjómannadagurinn í Reykjavík

    Veðurguðirnir tóku virkan þátt í sjómannadeginum í Reykjavík, 11. júní 2006. Þrátt fyrir hellidembu á meðan ræðumenn fluttu ávörp sín hlýddi töluverður fjöldi gesta á ræðurnar. Börn létu rigninguna heldur ekkert á sig fá heldur virtu uppnumin fyrir sér furðufiska og sprelluðu í leiktækjum á Hátíð hafsins.

  • Draumur hins djarfa manns

    Draumur hins djarfa manns var yfirskrift ráðstefnu sem efnt var til vegna útgáfu 3ja og síðasta bindis Sögu sjávarútvegsins eftir Jón Þ. Þór sagnfræðing. Á ráðstefnunni var leitast var við að varpa aðeins öðru ljósi á menningu og ímynd sjómanna en alla jafna er gert og tókst það með miklum ágætum. Svo mikið fjölmenni sótti ráðstefnuna að við lá að húsnæðið dygði ekki til. En þröngt mega sáttir sitja og allir skemmtu sér konunglega í Háskólaetrinu á Ísafirði 20. maí 2006.

  • Opinber heimsókn Björns Kalsö sjávarútvegsráðherra Færeyja

    Björn Kalsö sjávarútvegsráðherra Færeyja kom í opinbera heimsókn til Íslands 15. - 17. maí 2006 ásamt konu sinni Hennibeth Kalsö og Rógva Reinert ráðuneytisstjóra. Þau kynntu sér starfsemi fyrirtækja bæði á höfuðborgarsvæðinu og á norðanverðum Vestfjörðum. Veðrið lék við gestina vestra og voru þau hæstánægð með ferðina.

  • Útibú Fiskistofu opnað í Eyjum

    Útibú Fiskistofu í Vestmannaeyjum var formlega tekið í notkun 5. maí 2006. Þetta er fyrsta útibúið af fjórum sem opnuð verða á næstu misserum utan höfuðborgarsvæðisins. Hin þrjú verða á Höfn, í Grindavík og Stykkishólmi. Þrír starfsmenn hafa verið ráðnir í Eyjum en verða a.m.k. fimm.

  • Sjóminjasafnið í Reykjavík, Víkin

    Sjóminjasafnið í Reykjavík, Víkin, er nýtt af nálinni. Það var opnað gestum og gangandi á Hátíð hafsins 4. júní 2005. Sjávarútvegsráðherra skoðaði safnið 16. febrúar og sýninguna Togarar í hundrað ár.


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.