Myndir úr kjördæmi

Hér má sjá myndir úr kjördæmi.


Myndasafn

  • Nýr bæjarstjóri í Bolungarvík

    Elías Jónatansson tók við starfi bæjarstjóra í Bolungarvík 15. maí 2008. Í tilefni dagsins var að sjálfsögðu litið við hjá honum í vinnuna. Fyrir utan Hvíta húsið var Hálfdán Einarsson, elsti Bolvíkingurinn á ferð og Hildur Einarsdóttir.

  • Stjórnmálafundur á Ísafirði

    Tæplega hundrað manns sóttu stjórnmálafund Sjálfstæðisflokksins í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði sem haldinn var að kvöldi 14. maí 2008. Fundurinn var liður í fundaferð flokksins um allt land. Geir H. Haarde forsætisráðherra hafði framsögu og að því loknu sat hann fyrir svörum ásamt síðuhaldara og Herdísi Þórðardóttur þingmanni NV-kjördæmis.

  • Vegagerð á Vestfjörðum

    Á leiðinni til Ísafjarðar var staldrað við og hugað að vegagerð í Djúpinu og brúarsmíð. Þar er mikil samgöngubót í burðarliðnum sem og um Óshlíðina þegar göng verða komin milli Bolungarvíkur og Hnífsdals.

  • Stjórnmálafundur í Skagafirði

    Geir H. Haarde forsætisráðherra sótti Skagfirðinga heim miðvikudaginn 14. maí 2008 og efnt var til súpufundar á Hótel Varmahlíð. Margt bar á góma eins og vera ber og fundurinn vel heppnaður.

  • Ferð með forsætisráðherra á Patreksfjörð og víðar

    Forsætisráðherra og föruneyti var á ferð um Vestfirði helgina 5. - 6. maí. Hér eru svipmyndir frá Patreksfirði.

  • Fundur á Hólmavík

    Mánudaginn 30. apríl var haldinn opinn fundur á Café Riis á Hólmavík. Þar var margt góðra gesta, þeirra á meðal heiðursmaðurinn Engilbert Ingvarsson sem átti áttræðisafmæli tveimur dögum fyrr.

  • Kalkþörungaverksmiðja á Bíldudal

    Laugardaginn 28. apríl 2007 var kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal formlega tekin í gagnið. Verksmiðjan verður vinnustaður amk. tíu manna og mun hafa mikil og jákvæð áhrif á samfélagið allt á sunnanverðum Vestfjörðum.

  • Búðin hjá Bjarna Har.

    Skemmtilegustu búð Sauðárkróks rekur Bjarni Har. móðurbróðir vefara. Þar kennir ekki bara margra grasa á fáum fermetrum heldur allra þeirra sem nauðsynleg geta talist í daglegu amstri. Hjá Bjarna er ávallt glatt á hjalla eins og sjá má af myndunum.

  • Opinn fundur á Akranesi

    Herdís og Einar Kristinn komu víða við í framsöguerindum sínum á opnum kosningafundi á Akranesi sunnudagskvöldið 22. apríl. Fjölmenni mætti til fundarins og spurði frambjóðendurna spjörunum úr. Meðal annars var mikið rætt um velferðarmál og almannatryggingakerfið og kom skýrt fram hjá fundarmönnum að löngu sé tímabært að Sjálfstæðisflokkurinn taki við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Þá var farið rækilega yfir málefni sveitarfélaga, atvinnumál, skattamál, ofl. ofl.

  • Tekið til kostanna

    Mikið var um dýrðir í reiðhöllinni Svaðastöðum laugardagskvöldið 21. apríl þegar hápunkti alþjóðlegra hestadaga í Skagafirði, Tekið til kostanna, var náð með glæsilegri sýningu skagfirskra og húnvetnskra hestamanna. Á þriðja tug skemmtiatriða glöddu augu áhorfenda og kitluðu hláturtaugarnar sum hver allverulega. Geir H. Haarde forsætisráðherra setti sýninguna og gaf þar tóninn fyrir það sem koma skyldi. Skagfirðingar eru kunnir gleðimenn og með léttri og skemmtilegri sýningu þar sem ávallt var stutt í glens og grín sýndu þeir og sönnuðu á hverju það orðspor byggist.

  • Opið hús á kosningaskrifstofunni á Akranesi

    Stanslaus straumur fólks lá á kosningaskrifstofurnar í kjördæminu laugardaginn 21. apríl 2007 til að hitta frambjóðendur sem þar voru til skrafs og ráðagerða. Margt bar á góma og myndaðist góð stemmning um leið og fólk sporðrenndi hnallþórum og hvers kyns góðgæti öðru sem í boði var.

  • Kári - Víkingur

    Einar Kristinn og Herdís Þórðardóttir heilsuðu upp á leikmenn knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi og Víkings í Ólafsvík fyrir leik liðanna í Lengjubikarkeppni KSÍ laugardaginn 21. apríl 2007. Kári var stofnaður fyrir einu ári og er þetta fyrsti opinbera viðureign félaganna. Leikið var í knattspyrnuhöllinni á Akranesi og unnu Ólafsvíkingar 7-2.

  • Borgarafundur á Ísafirði

    Sjónvarpið hélt borgarfund í beinni útsendingu frá Ísafirði 17. apríl þar sem fulltrúar allra flokka sem bjóða fram á landsvísu tókust á um samgöngu- og sjávarútvegsmál. Fundur var bráðfjörugur og tóku áhorfendur í sal íþróttahússins á Torfnesi virkan þátt í honum.

  • Hátíð að Hólum

    Um áramót breyttist Hólaskóli formlega í háskóla þar sem vera skal miðstöð háskólakennslu og rannsókna í hrossarækt, hestamennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu í dreifbýli. Skólinn fékk sérstakt leyfi að setja á fót alþjóðlega deild í hrossarækt og hestamennsku og innheimta skólagjöld af nemendum alþjóðlegu deildarinnar. Í tilefni þessa var efnt til hátíðar föstudaginn 23. mars 2007 þar sem nýtt 3.330 fermetra hesthús tekið í notkun sem getur rúmað 200 hross. Einnig er 800 fermetra reiðhöll við syðri enda hússins.

  • Kosningaskrifstofa opnuð á Akranesi

    Á annað hundrað manns mættu á opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi 17. mars. Kosningaskrifstofan er sú fyrsta sem opnuð er á vegum Sjálfstæðismanna í aðdraganda Alþingiskosninganna 2007. Tónlistaratriði voru einkar vel heppnuð en flautuleikarar frá Tónlistarskóla Akraness léku af list og söngvarar frá Söngskóla Huldu sungu nokkur lög. Þá opnaði Herdís Þórðardóttir heimasíðu framboðsins, nordvesturland.is.

  • Ferð til Hólmavíkur, Súðavíkur og Bolungarvíkur.

    Það er alltaf gaman að heilsa upp á kunningjana um land allt. Að þessu sinni lá leiðin til Hólmavíkur, Súðavíkur, Ísafjarðar og Bolungarvíkur.

  • Opinn skógur í Tröð

    Skógræktarfélag Íslands stendur fyrir verkefninu Opinn skógur. Markmið þess að opna fjölmörg skógræktarsvæði í eigu og umsjón skóræktarfélaga víðs vegar um landið. Tröð á Hellissandi er sjöunda slíka svæðið sem opnað er með táknrænum hætti og gerði Einar K. Guðfinnsson það laugardaginn 15. júlí 2006.

  • Heimsókn í Grundarfjörð

    Heimsókn í Grundarfjörð 22. febrúar 2006


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica