Ferðalög erlendis
Myndir af ferðalögum erlendis
Myndir af ferðalögum erlendis
Í Cuxhaven 11. febrúar 2008 voru Deutsche Fischfang Union, Deutsche Salzfisch Union og Icefresh heimsótt en þau eru í eigu Samherja og Visis.
Í tengslum við sjávarútvegssýningu og ráðstefnu í Bremen 12. febrúar 2008 var degi áður skipulagðar heimsóknir til sjávarútvegsfyrirtækja í Bremerhaven og Cuxhaven. Í Bremerhaven var m.a. komið við á fiskmarkaðnum, hjá Deutsche See, borgaryfirvöldum og Alfred Wegener hafrannsóknastofnuninni.
Ein stærsta matvælasýning heims, Græna vikan, er haldin ár hvert í Berlín. Ísland skipaði sérstakan heiðurssess fyrstu tvo daga sýningarinnar, eins og verið hefur undanfarin tvö ár. Þá sáu Árni Siemsen og samstarfsfólk hans af veitingastaðnum Sachs í Berlín um kynningu og matreiðslu á íslensku sjávarfangi. Fjöldi gesta lagði leið sína að básnum og er óhætt að segja að íslenskar sjávarafurðir hafi vakið mikla athygli, líkt og reyndar flest annað sem kynnt var við þetta tækifæri. Dr. Matthias Keller framkvæmdastjóri Samtaka fiskiðnaðarins í Þýskalandi tók á móti sjávarútvegsráðherra þegar sýningin var opnuð.
Árleg sjávarútvegssýning í Brussel var haldin 9. - 11. maí 2006. Meira en 1600 fyrirtæki frá 70 löndum kynna framleiðslu sína og nýjungar. Um 30 íslensk fyrirtæki tóku þátt í sýningunni. Fleiri þúsund gestir sækja hana á hverju ári, enda er þetta stærsta fagsýning í heimi. .
Í þriggja daga heimsókn til Bretlands 21. -23. mars 2006 var komið víða við. Dagurinn tekinn snemma og arkað á fiskmarkaði bæði í Hull og Grimsby. Í kjölfarið voru svo helstu markaðsfyrirtæki Íslendinga á sviði sjávarútvegs, flutninga og matvælaframleiðslu sótt heim og heilsað upp á fjölmarga aðra hagsmunaaðila. Hér getur að líta myndir frá nokkrum viðkomustaðanna.