Erlent samstarf

Hér má sjá myndir af erlendu samstarfi.


Myndasafn

  • Heimsókn sjávarútvegsnefndar Evrópuþingsins

    Sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins var í heimsókn á Íslandi dagana 27.-29. október. Í sendinefndinni voru sex þingmenn, frá Svíþjóð, Skotlandi, Þýskalandi, Spáni og Ítalíu. Nefndin var hingað komin til að kynna sér sjávarútvegsstefnu Íslands. Auk nefndarmanna voru með í för aðstoðarfólk og túlkar eða alls var þetta 20 manna hópur.

  • Opinber heimsókn sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherra Grænlands

    Finn Karlsen sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherra Grænlands kom í opinbera heimsókn hingað til lands í ágúst. Ráðherrann kynnti sér m.a. starfsemi stofnana og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu sem tengjast sjávarútvegi, heimsótti Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, kynnti sér þorskeldi í Ísafjarðardjúpi, skoðaði stórfenglegt útsýni af Bolafjalli og heimsótti bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur. Meðfylgjandi myndir eru teknar fyrir vestan.

  • Sumarfundur matvælaráðherra Norðurlandanna 2008

    Fundurinn var haldinn í Växjö í Svíþjóð í júní. Ísland verður í forystu Norðurlandasamstarfsins á næsta ári og verður sumarfundurinn þá haldinn á Ísafirði.

  • Ársfundur NAFMC á Möltu

    Árlegur fundur sjávarútvegsráðherra við Norður-Atlantshafið var haldinn í maí á Möltu, heimalandi Joe Borg fiskimálastjóra Evrópusambandsins. Á milli funda var farið í áhugaverðar skoðunarferðir.

  • Sjávarútvegssýningin í Brussel 2008

    Sjávarútvegssýningin í Brussel sem er stærsta fagsýning í heimi á sviði sjávarútvegs var haldin í sextánda sinn í apríl 2008. Meira en 1600 fyrirtæk frá um 80 löndum tóku þátt í henni. Á fjórða tug íslenskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína við þetta tækifæri.

  • Sjávarútvegsráðherra Indónesíu á Íslandi

    Freddy Numberi sjávarútvegsráðherra Indónesíu heimsótti íslensk fyrirtæki og stofnanir 16. apríl 2008. Þá flutti Numberi erindi um indónesískan sjávarútveg á opnum fundi á Grand Hóteli þar sem skrifað var undir viljayfirlýsingu milli Íslands og Indónesíu um samstarf á sviði sjávarútvegs.

  • Trans Atlantic Climate Conference

    Alþjóðleg ráðstefnu um áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar í Norður-Atlantshafi og þann vanda sem þær skapa fyrir lönd á svæðinu var haldin í Færeyjum 7. apríl 2008. Liðlega þrjú hundruð manns víðs vegar að úr heiminum tóku þátt í ráðstefnunni, þeirra á meðal Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og Nóbelsverðlaunahafi sem flutti aðalerindi ráðstefnunnar.

  • Sjávarútvegssýning og ráðstefna í Bremen

    Þýsk-íslenska viðskiptaráðið, sendiráð Íslands í Þýskalandi, Glitnir og sjávarútvegssýningin í Bremen efndu til ráðstefnu um íslenskan og þýskan sjávarútveg 12. febrúar 2008.

  • Uppboð á minkaskinnum

    Í byrjun febrúar 2008 sóttu ráðherra og ráðuneytisstjóri vel heppnað uppboð á minkaskinnum hjá Kopenhagen Fur í Danmörku. Um 30% hærra verð fékkst fyrir skinnin en á uppboði í desember.

  • Alþjóðleg hestasýning í Stokkhólmi

    Einar Kristinn var heiðursgestur og setti alþjóðlega hestasýningu í Stokkhólmi í Svíþjóð 30. nóv. 2007. Að þessu sinni skipaði íslenski hesturinn veglegan sess á sýningunni sem nú er haldin í fimmtánda sinn í íþróttahöllinni Globen. Hún stendur yfir í þrjá daga og sækja tugir þúsunda gesta viðburðinn ár hvert. Íslenski hesturinn er vinsæll í Svíþjóð og er þriðja útbreiddasta hestakynið þar í landi. Komið var til setningarathafnarinnar í hestvagni sænska konungsins.

  • Hestamiðstöð í Gultentorp

    Laugardaginn 20. okt. 2007 var hestamiðstöð formlega tekin í notkun í Gultentorp sem er skammt frá Álaborg á Jótlandi. Hestabúið er í eigu Kjelds Dissings og fjölskyldu hans sem á marga tugi íslenskra hesta. Á annað hundrað gesta sóttu athöfnina, þeirra á meðal Jens Iversen forseti FEIF - Alþjóðasamtaka unnenda íslenska hestsins viðstaddur og sendiherrahjónin Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir. Í tilefni dagsins voru fjórir þekktir stóðhestar sýndir; Númi frá Þóroddsstöðum, Stefnir frá Sandhólaferju, Gustur frá Kjarri og Ögri frá Háholti sem er vinsælasti íslenski stóðhesturinn í Danmörku í ár, notaður fyrir 47 hryssur.

  • Sjávarútvegsráðstefna og sýning í Álaborg

    Föstudaginn 19. okt. 2007 var haldin veigamikil ráðstefna um framtíð sjávarútvegs á Íslandi og í Danmörku. Ráðstefnan var haldin í tengslum við sýninguna DanFish og einnig var tækifærið nýtt til að heimsækja fyrirtækið Carnitech.

  • Ársfundur NAFMC

    Árlegur fundur sjávarútvegsráðherra við Norður-Atlantshafið var haldinn í Narsaq í Grænlandi í júní 2007. Heimamenn buðu gestum í skoðunarferð um ægifagra náttúruna og einnig vildi svo heppilega til að þjóðhátíðardag Grænlendinga bar upp á sama tíma og fundahöldin.

  • Ráðstefna í Lilleström 27. -28. feb. 2007

    Í lok febrúar var ráðstefnan North Atlantic Seafood Forum haldin í Lilleström í Noregi. Sjávarútvegsráðherra ræddi þar m.a. um umhverfismerkingar sjávarafurða og sjálfbæra nýtingu auðlinda, skiptist á skoðunum við Rupert Howes framkvæmdastjóra Marine Stewardship Council í pallborði og svaraði fyrirspurnum úr sal. Einnig ávarpaði Einar K. gesti við opnun starfsstöðvar Landsbankans í Osló, þeirrar fyrstu í Noregi og reyndar á Norðurlöndum utan Íslands.

  • Ráðstefna í Færeyjum 3. - 4. maí

    Norræn ráðstefna um hagræna stjórn fiskveiða var haldin í Færeyjum í byrjun maí. 100 gestir sóttu hana frá sex löndum.

  • Ársfundur NAMMCO

    Fimmtándi ársfundur NAMMCO, Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins, var haldinn á Selfossi 14-16. mars 2006. Sendinefndir aðildarlandanna fjögurra, Færeyja, Grænlands, Íslands og Noregs fóru yfir helstu verkefni ráðsins. Einnig sóttu fundinn fulltrúar ríkisstjórna Kanada, Danmerkur, Rússlands, Japan og St. Luciu sem og fulltrúar ýmissa samtaka.


Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica