Í léttari dúr

"Viljirðu syngja af lífsins list"

Menningarviðburður með Karlakórnum Heimi

16 jan. 2012

 

Nýárshátíð Karlakórsins Heimis í Skagafirði tókst afbragðs vel þetta árið; svo sem eins og endranær. Tónleikarnir sem haldnir eru í byrjun árs hafa fyrir löngu skipað verðugan og ómissandi sess í menningarlífi Skagfirðinga. Húsfyllirinn í Miðgarði sýndi okkur og sannaði hversu mjög Skagfirðingar – og fleiri raunar – meta að verðleikum sinn góða kór.

Ljosm.-Feykir Ljosm.-Feykir

Sá sem hér stýrir tölvubendlinum hefur sótt þessa tónleika um langt árabil. Það hefur verið gaman og uppörvandi að sjá hvernig metnaður kórfélaga og stjórnenda hans hefur vaxið ár frá ári. En um leið og metnaðurinn hefur aukist og  áskoranirnar orðið æ stærri, hefur kórinn aldrei glatað þeim ómetanlega hæfileika sínum að gleðja okkur áheyrendurna. Það brást ekki núna. Saman fór með prýðilegum hætti menningarlegur metnaður, fjörlegt og skemmtilegt yfirbragð, gríðarlega góður söngur kórsins og einsöngvara og síðan afbragðs tónlisarflutningur Salon Islandus.

Ég minnist tónleika frá nýliðnum árum, þar sem temað var Bólu Hjálmar. Einnig rifjast upp fyrir manni árið þegar sjálfur Örlygsstaðabardagi var uppfærður í tali og tónum, í handritsgerð Agnars vinar míns á Miklabæ. Eða árið sem kórinn flutti dagskrá til heiðurs skagfirska tenórnum Stefáni Ó. Íslandi. Og nú voru þetta ekta Vínartónleikar. Söngstjóri Heimis núna er Helga Rós Indriðadóttir í veikindaleyfi hins reynda og farsæla stjórnanda kórsins, Stefáns Gíslasonar. Helga Rós söng einsöng í nokkrum lögum og annar einsöngvari var stórtenórinn Óskar Pétursson, Álftagerðisbróðir. Sérlegir gestir kórsins voru hljómsveitin Salon Islandus, skipuð úrvals listamönnum meðal annars úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Fastur liður á þrettánda eða nýárstónleikum Heimis er síðan ræðuflutningur, í léttari dúr. Og þar hafa komið við sögu margir málsnjallir menn, svo sem Davíð Oddsson, Guðni Ágústsson og margir fleiri. Nú mætti til hátíðarinnar Katrín Jakobsdóttir mennta og menningarmálaráðherra og flutti prýðisgott mál.

 

Ég heyrði það á tal karla frammi í sal í hléinu að Helga Rós hefði á þessum tónleikum sýnt takta sem enginn karlmaður hefði getað leikið eftir henni. Hún gerði nefnilega tvennt í einu, sem er nokkuð sem karlar geta ekki leikið eftir eins og kunnugt er. Helga Rós sveiflaði tónsprota sínum og stjórnaði kórnum og söng svo einsöng jöfnum höndum með sinni fallegu og glæsilegu rödd. Það er því ekki að undra að karlpeningurinn í kórnum verði stimamjúkur. Eða eins og okkar góða skáld Sigurður Hansen kórfélagi í Heimi orti:

Áhrif Helgu eru stór
augum rennir fránum
svo að gamall karlakór
kiknaði í hnjánum.

Og Sigurður Hansen orti einnig eftirfarandi heilræði til kórfélaga síns sem sýnist eiga almennt vel við þegar kemur að kórsöng:

Viljirðu syngja af lífsins list
og láta sjá það á þér,
andann dragðu að þér fyrst
og andaðu síðan frá þér

 

Áhugasömum um karlakórinn Heimi er síðan bent á þeirra afbragðsgóðu og bráðskemmtilegu heimasíðu, http://www.heimir.is/ og myndir sem finna má af síðustu hátíð kórsins á http://www.feykir.is/ með því að smella á þetta ORÐ. Myndin sem fylgir þessum pistli er fengin af þeirri síðu.

 

 

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Sarpur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica