Í léttari dúr

Skagfirski húmorinn svíkur ekki

Eins og þekkt saga af Bjarna Har. sannar

28 des. 2011

Við Guðni Ágústsson vorum dubbaðir upp í hlutverk bókmenntakrítíkera núna rétt fyrir jólin. Björn Jóhann Björnsson, Skagfirðingurinn sem tók saman hinar ágætu Skagfirsku skemmtisögur fékk okkur til liðs við sig á Útvarp Sögu til þess að fjalla um bókina og kynni okkur af Skagfirðingum. Ég hef það fram yfir Guðna að vera skagfirskrar ættar. Móðir min er borin og barnfæddur Skagfirðingur og langamma mín í föðurætt fæddist þar og bjó fram á fullorðinsár. Sjálfur dvaldi ég sumarlangt fram yfir fermingu í Skagafirði. Guðni er hins vegar elskur að Skagfirðinum og Skagfirðingum og þar á hann mörgum góðum vinum að mæta.

En þó við höfum marga fjöru sopið þá var það í fyrsta sinn sem við tókum að okkur bókmenntakrítíkina; að minnsta kosti svona saman. Okkur líkaði verkefnið vel og gætum örugglega hugsað okkur að taka að okkur fleiri slík, sé nokkur eftirspurn eftir kröftum okkar til þeirra verka.

En bókin hans Björns Jóhanns hefur vakið hjá mer gleði og yndi. Mér finnst gott að hann er græskulaus í vali sínu á sögum. Sé raunar dæmi um að hann hefur tekið brodda úr sögum, sem sárir gætu talist. Það finnst mér gott hjá honum. Sögur geta menn sagt með öðrum hætti í góðra vina hópi, en þegar þær koma út á bók. Og þessar sögur gjalda þess í engu að þetta sé frásagnaraðferðin.

Þessa bók er þess vegna gaman að lesa, hlægja upphátt, lesa upp úr henni sögu og sögu, fyrir heimilisfólkið sitt og láta það hlægja með sér. Það bætir og kætir, ekki síður en maltið.

Ein saga af Bjarna Har.

Bjarni Haraldsson í góðra vina hópi Bjarni Haraldsson í góðra vina hópi

Og svo læt ég hér fylgja með eina sögu, þar sem söguhetjan er Bjarni Haraldsson kaupmaður á Sauðárkróki og móðurbróðir minn, sem átti sinn þátt í sumarlöngu uppeldi á mér fram yfir fermingaraldurinn. Og hér kemur útfærsla Björns Jóhanns á þessari vel þekktu sögu af Bjarna Har:

"Er þetta er ritað rekur Bjarni Haraldsson enn Verzlun Haraldar Júlíussonar við Aðalgötuna , sem faðir hans stofnsetti árið 1919. Verslunin er með síðustu starfandi krambúðum landsins, enda friðuð og verið viðurkennd af Byggðasafni Skagfirðinga sem minnisvarði um hverandi viðskiptahætti. Bjarni Har. hefur löngum verið hnyttinn í tilsvörum enda með eindæmum jakvæður og lífsglaður maður. Bjarni hefur alla tíð verið dyggur fylgismaður Sjálfstæðisflokksins og fékk um árið undanþágu frá Óla í Olís til að hafa bláan lit í Olís merkinu, frekar en framsóknar grænan! En verslunin hefur verið umboðsaðili Olís, áður BP, allt frá árinu 1930.

Lengi vel var starfrækt þvottaplan við verslunina og eitt sinn var einn af goðborgurum bæjarins að þvo bifreið sína á planinu. Eitthvað gekk þvotturinn treglega og fór svo að maðurinn rauk inn í verslunina í fússi, sagði kústinn hárlausan og með öllu ónothæfan. Bjarni varð tilsvara og með sínum hógværa húmor tók hann niður derhúfuna, strauk yfir beran skallann og sagði:

"Allt í stíl hjá BP."

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Sarpur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica