Í léttari dúr
Í léttum dúr

Þetta viðfangsefni á örugglega eftir að þróast

18 jan. 2011

Þessi nýji dálkur á heimasíðunni á örugglega eftir að taka nokkrum breytingum á komandi vikum. Eftir því sem síðuskrifari tileinkar sér betur tæknina á bak við gerð síðunnar mun þessi dálkur þróast.
Hér eru miklir möguleikar. Samfara því að myndum fjölgar í myndasafni mun tilefni gefast til þess að skrifa smáræði utan um það Í léttari dúr.
Hugmyndin er sú að láta myndir tala sínu máli og hafa þá textann knappari. Reynslan kennir hvort það verði á valdi siðuritara að halda aftur af sér við skrifin.
Þá má búast við frásögnum af ýmsum atburðum sem verða á vegi þess sem hér stýrir tölvubendlinum.
Sem sagt nýbreytni, sem er undir því komið hvernig til tekst við að þróa afurðina.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.


Sarpur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica