Greinar/Ræður

Allt fyrir alla - alltaf

24.9.1998

Fyrstu spor hins nýja vinstri stjórnmálabræðings hafa reynst bæði óburðug og lítt sannfærandi. Rangar fullyrðingar í veigamiklum málum, yfirboðsstefna í vel flestum málaflokkum sem til útgjalda horfa og misvísandi yfirlýsingar hafa gert þessa nýju stjórnmálahreyfingu einkar ótrúverðuga.
Það er til dæmis augljóslega rétt sem einn af áköfustu talsmönnum samfylkingar vinstri manna, Stefán Jón Hafstein, heldur fram í leiðara Dags á dögunum er hann segir orðrétt: "Á hinn bóginn verður að segjast eins og er að skráin er í bland langur og firnadýr óskalisti sem ber þess merki að allt var tekið inn, engu hafnað, í þágu sátta og samlyndis. Engin ríkisstjórn mun koma öllu þessu í verk á eðlilegum lífstíma slíkra fyrirbrigða".
Frá því að þessi orð voru sett á blað hefur það komið fram að kostnaðurinn við hinn "firnadýra óskalista" geti legið á bilinu 40 til 60 milljarðar króna! _ Því hefur ekki verið hafnað af aðstandendum plaggsins.

Allt með í nafni samstöðunnar

Í sjálfu sér þarf þetta engan að undra. Allir flokkarnir sem standa að vinstri bræðingnum voru komnir í þá stöðu að þeir áttu enga útgönguleið. Yfirlýsingar forystumanna og annarra voru á þann veg að þeir áttu ekki annan kost en að ljúka sameiningarferlinu fræga, berja saman stefnuskrá og halda af stað út í óvissuna. Þá var um að gera að skella inn í plaggið öllu því sem nokkrum manni gat dottið í hug _ "í þágu sátta og samlyndis", eins og segir í leiðara Dags. Niðurstaðan er reikningur til skattborgaranna upp á þetta 40 til 60 milljarða.
Þegar þetta var orðið lýðum ljóst var gripið til þess ráðs að segja málefnaskrána hugmyndir sem ætti að framkvæma einhvern tímann á næstu öld. En það gekk heldur ekki upp. Sjálft plaggið kvað á um að það væri málefnaskrá til fjögurra ára, vegna sameiginlegs framboðs þessara flokka í alþingiskosningunum að vori. Þar með lá það fyrir svart á hvítu.

Ótrúlegur vandræðagangur

Vandræðagangurinn í kringum varnarmálin er svo sérstakur kapítuli. Varnarmálin eru sannast sagna ekki mjög ofarlega á lista yfir þau mál sem tekist er á um í þjóðmálabaráttunni um þessar mundir. Þessi mál voru umdeild hér fyrr á öldinni, eins og vitur maður orðar það stundum. Nú um stundir mælast herstöðvaandstæðingar í fáeinum prósentum. Það þurfti því sérstaka lagni til að gera sér þetta mál að pólitísku fótakefli. Og ekki tók nú betra við þegar farið var að birta leiðréttingu við málefnaskrána. Þá var talað um að um ónákvæmt orðalag væri að ræða í tímamótaplagginu. Þó vissi öll þjóðin að arnarmálakaflinn var einn allsherjar misskilningur, byggður á hreinni vanþekkingu. Fjölmiðlar hafa upplýst að talsmenn flokkanna hafi í upphafi fullyrt og ítrekað að það sem segði um uppsögn varnarsamningsins í málefnaskránni væru ofureinfaldar staðreyndir. Þeir stóðu í þeirri trú að varnarsamningurinn hefði að geyma sólarlagsákvæði og rynni út eftir tvö þrjú ár. Það var því ekki orðalagið sem var ónákvæmt. Gagnaöflunin sjálf var bara í algjöru skötulíki.

Of mikil kynning?

Upp á síðkastið hefur því síðan verið haldið fram að kynningin hafi misfarist. Ekki stenst það nú alveg. Kynningin var þvert á móti mjög ítarleg. Fjölmiðlar greindu skilmerkilega frá blaðamannafundi forystumannanna og voru með beinar útsendingar í sumum tilvikum, til þess að þjóðin fengi strax hin mikilvægu tíðindi. Málefnaskráin var birt í heild á vefsíðum einstakra fjölmiðla. Þannig vantaði ekkert upp á kynninguna.
Því er spurning hvort ekki sé fremur tilefni fyrir þá, er bera samfylkinguna fyrir brjósti, að kvarta undan of ítarlegri umfjöllun en að eitthvað hafi skort á. Það er öllum ljóst að efnisinnihald málefnaskrárinnar þoldi ekki betur en þetta að vera dregið fram í dagsljósið. Þar er ekki við kynninguna að sakast, heldur pólitíkina sem liggur til grundvallar vinstri bræðingnum.

Einar K. Guðfinnsson alþingismaður

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica