Breytingar á fiskveiðistjórnarkerfi
Því er stundum haldið fram að litlar breytingar hafi orðið fiskveiðistjórnarkerfinu að undanförnu. Það er þó rangt, eins og hér verður rakið. Breytingarnar hafa verið margvíslegar og sumar býsna afdráttarlausar.
Aukið rými fyrir smábáta
Bann við að afskrifa kvótaeig
Annað atriði má nefna. Leiddar voru í lög heimildir til þess að afskrifa eða fyrna kvótaeign. Slíkt hafði verið heimilt fram að breytingunum og var skattalega ívilnandi fyrir útgerðirnar. Þetta var sjálfsagt ein ástæða lítillar tekjuskattsgreiðslu margra sjávarútvegsfyrirtækja sem oft hefur verið vakin athygli á. Enginn vafi er á því að ef þau lög sem nú gilda hefðu verið til staðar fyrir nokkrum árum hefðum við séð umtalsverðar skattgreiðslur fjölmargra
sjávarútvegsfyrirtækja, sem hafa hagnast vel, en ekki greitt skatta. Að öllu óbreyttu hefði þessi ákvörðun átt að lækka kvótaverð, þótt það hafi ekki átt sér stað.
Lög sem takmarka kvótaeign
Lög sem takmarka kvótaeign
Takmörkun framsals
Fjórða atriðið sem nefna má lýtur að framsalinu.Fátt hefur verið jafnumdeilt og sá þáttur fiskveiðistjórnarkerfisins."Brask með óveiddan fisk", -- "sala á auðlindinni" er stundum sagt í því sambandi og stöðugt hafa gengið sögur um menn sem hafa yfir kvóta að ráða, fiska hann ekki, en lifi í vellystingum praktuglega á leiguviðskiptum. Nú hefur mjög dregið úr leiguviðskiptum með aflaheimildir, það er afleiðingin af lagabreytingum sem
meðal annars fólu í sér aukna veiðiskyldu.
Því er ekki að neita að þessi breyting er mjög umdeilanleg. Bátar með litlar veiðiheimildir og einstaklingsútgerðir telja sig til dæmis fara hallloka vegna þessara breytinga. Forystumenn sjómanna hafa hins vegar lagt á þetta atriði höfuðáherslu. Verðmyndun á fiski og kvóta hafa einmitt verið höfuðdeiluefnin í amk. tveimur sjómannaverkföllum.
Talsverðar breytingar
Af öllu þessu má sjá að talsverðar breytingar hafa átt sér stað í starfsumhverfi sjávarútvegsins og á lögum um fiskveiðistjórnun. Nú er búið að ákveða með lögum að endurskoða skuli fiskveiðistjórnarlögin í heild sinni. Sú vinna mun fara fram á þessu ári og því næsta. Það er því alrangt sem stundum er haldið fram að ekki hafi verið hugað að breytingum á fiskveiðistjórnarlögunum á þessu kjörtímabili.
Einar K. Guðfinnsson
1. þingmaður Vestfjarða
