Greinar/Ræður

Menningararfurinn eflir atvinnustarfsemi

29.6.2002

Enginn vafi er á því, segir Einar K. Guðfinnsson, að þessar sýningar munu vekja athygli á merkum þætti í sögu okkar.

ÞAÐ er skemmst af að segja að mjög hefur miðað í þá átt að auka afþreyingu ferðamanna hér á landi. Fyrir framtak einstaklinga og með eðlilegum stuðningi hins opinbera hefur verið unnið að þessum málum á undanförnum árum. Öllum má vera ljóst, sé litið yfir tiltekið tímabil, að nú er boðið upp á langt um fjölbreyttari afþreyingu en áður. Við eigum þess kost í ríkari mæli en áður að kynnast töfrum Íslands, náttúrunni, sögunni og menningunni, með allt öðrum hætti. Það er vissulega vel.
Um þetta má nefna ótal dæmi um allt land, sem vakið hafa verðskuldaða athygli. Allt er þetta liður í því að efla mikilvæga atvinnugrein, ferðaþjónustuna. En hinu má heldur ekki gleyma, að þetta eru menningarverkefni, verkefni sem hafa gildi í sjálfu sér og munu því verða til eflingar menningarstarfsemi í landinu öllu.

Tvö athyglisverð dæmi

Um síðustu helgi átti ég þess kost að líta augum tvö góð dæmi um uppbyggingu í menningartengdri ferðaþjónustu, sem einmitt sameinar þetta sem hér hefur verið nefnt; eflingu ferðaþjónustu og ræktun menningararfsins, í sem bestum skilningi þess orðs.
Er annars vegar um að ræða byggðasögusýningu sem opnuð hefur verið í Dalbæ á Snæfjallaströnd og kallast Horfin býli og huldar vættir í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu. Hins vegar er það opnun á sauðfjársetri í Sævangi í Strandasýslu, þar sem komið hefur verið upp merkilegri sýningu um sauðfjárbúskap, handverksbúð og kaffistofu.

Nýr aflvaki

Enginn vafi er á því að þessar sýningar munu vekja athygli á merkum þætti í sögu okkar. Annars vegar sögu merkilegrar byggðar og hins vegar sýning um lifandi atvinnugrein og þýðingu hennar í nútíð og fortíð fyrir land og þjóð. Það eykur gildi slíkra verkefna þegar þau eru samtvinnuð ferðaþjónustunni. Þannig verða þær til eflingar nýjum atvinnuháttum og glæða byggðirnar auknu lífi.
Reynslan hefur sýnt okkur að atvinnustarfsemi af þessum toga er mikilvæg víða um land og þýðing hennar fer vaxandi. Enginn vafi er á því að einmitt tengsl ferðaþjónustu, sögu og menningar okkar geta orðið nýr aflvaki í þessum þætti atvinnulífs okkar. Ekki síst úti um landið. Þess vegna er full ástæða til þess að vekja athygli á athyglisverðum nýjungum á þessu sviði, sem bætast við fjölþætta starfsemi sem þegar fer fram á þessu sviði og geta orðið til hvatningar víðar.
Höfundur er alþingismaður og formaður Ferðamálaráðs.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica