Greinar/Ræður

Burt með ykkur?

10.3.2001

Flugvöllurinn er mikilvægasta umferðarmiðstöð Íslendinga, segir Einar K. Guðfinnsson, vegna ferðalaga innanlands.

FLUGVÉLIN kemur inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Um borð eru farþegar sem eiga erindi af margvíslegum ástæðum. Þar getur verið amma eða afi á leið í heimsókn til barnabarnanna sem búa syðra, sveitarstjórnarmaðurinn að erindast í Reykjavík, vegna þess að þar er öll stjórnsýslan, framkvæmdastjórinn í erindum fyrirtækis síns, ungt fólk á leið í skóla, karl eða kona sem hafa ákveðið að lyfta sér upp um helgina í leikhúsum eða öðrum menningarstofnunum, sem ríkissjóður starfrækir af örlæti sínu fyrir skattfé allra landsmanna í Reykjavík.
Og ferðin er svo sem ekki gefin. Einstaklingur pungar út fimmtán þúsund kalli, eða kannski einhverju minna, ef hann getur fellt skilmála ferðarinnar að erindi sínu. Það er þess vegna öllum ljóst að ferðalangurinn er að leggja talsvert á sig fjárhagslega til þess að koma flugleiðis í bæinn. Hann er með öðrum orðum ekki að gera það að gamni sínu, eða vegna þess að hann eigi annarra (og ódýrari) kosta völ. Menn nýta sér þennan ferðamáta af þörf.

1.200-1.300 farþegar á dag

Þetta er hlutskipti sem nær hálf milljón farþega kýs sér. Um flugvöllinn í Reykjavík fara nefnilega daglega um 1.200 til 1.300 farþegar í margvíslegum erindum. Sá þægilegi kostur að geta farið upp í flugvél á Reykjavíkurflugvelli og flogið í allar áttir út frá höfuðborginni og til baka skiptir þetta fólk höfuðmáli.
Af þessu má ráða að flugvöllurinn skipar ríkulegan sess í huga mjög margra. Og skýringin er einföld; flugvöllurinn er grundvöllur að lífi og starfi svo margra Íslendinga um land allt og ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.
Það hljómar því ótrúlega sérkennilega, þegar flugvöllurinn, þessi lífæð, er skyndilega orðinn útmálaður sem óvelkomin boðflenna í höfuðborginni. Daglegur ferðamáti 1.200-1.300 manna og vinnustaður fjölmargra, er sem útlægur gerr, í máli þeirra sem gera nú kröfu til þess að flugvöllurinn fari burt. Krafan um flugvöllinn burt er nefnilega líka um að víkja burtu því fólki sem nýtir hann og þeirri starfsemi sem í kring um hann þrífst. Það að allur þessi fjöldi fólks ferðast oftar og skemur með innanlandsfluginu er til marks um brýna þörf og að innanlandsflug um Reykjavík er besti kosturinn.

Út í hafsauga eða í apalhraun

Umræðan um flugvöllinn hefur verið afar ómarkviss af hálfu þeirra sem vilja hann feigan. Eftir að farið var að ræða málin af krafti, vegna hinnar stórfurðulegu atkvæðagreiðslu sem er fyrirhuguð í Reykjavík á næstunni, hófst afar sérkennileg atburðarrás. Með tilviljanakenndum hætti hentu menn á lofti alls konar hugmyndir um hvar nýjan flugvöll mætti staðsetja. Var þar í senn lagt til að flugvöllurinn yrði settur út í hafsauga, eða út í einhver apalhraun.
Sem dæmi um hversu vanhugsaðar þessar hugmyndir voru, má nefna að borgaryfirvöld lögðu til í opinberri umræðu að nýjum milljarða flugvelli yrði komið fyrir í tilteknu sveitarfélagi, án þess að yfirvöld þess hefðu af því spurnir fyrr en í fjölmiðlum. Síðar kom svo í ljós að þessi hugmynd virtist fráleit. Nýr flugvöllur hefði verið tiltölulega stutt frá Keflavíkurflugvelli, umferð frá Hvassahraunsvelli kynni að trufla alþjóðaflug, vandamál gætu skapast við blindflug, flug um völlinn yrði takmarkað vegna umferðar um Keflavíkurflugvöll, auk þess sem svæðið er annálað meðal flugmanna fyrir vindsperring og garra; raunar kom það fram í Morgunblaðinu nýlega að þangað legðu flugmenn leið sína vildu þeir æfa sig við nógu andstyggilegar aðstæður.

Farsæl áratuga reynsla af Reykjavíkurflugvelli

Allt hnígur því að hinu sama. Eðlilegast er að flugvöllurinn verði áfram á sínum stað á landi sem ríkið á að hluta til, í svokallaðri Vatnsmýri. Áratugareynsla af flugvelli á þessum stað er farsæl og góð. Flugvöllurinn er mikilvægasta umferðarmiðstöð Íslendinga vegna ferðalaga innanlands. Hann er upphaf þjóðleiðar um landið og treystir stöðu höfuðborgarinnar. Það er því sameiginlegt hagsmunamál okkar Íslendinga að svo mikilvægt samgöngumannvirki verði um ókomin ár til staðar.
Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Vestfirði.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica