Greinar/Ræður

Verkefnin út á land

25.10.2001

Það er ástæða til þess að hvetja þá sem þessum málum ráða, segir Einar K. Guðfinnsson, til að ákveða staðsetningu þessara verkefna úti á landi.

ÞEGAR Lyfjastofnun var sett á laggirnar í fyrra, ákvað stjórn Byggðastofnunar að rita heilbrigðisráðherra bréf og vekja athygli á því ákvæði gildandi Byggðaáætlunar að leitast yrði við að staðsetja nýja starfsemi hins opinbera úti á landsbyggðinni. Af þessu hlaust nokkur opinber umræða. Varð niðurstaðan sú, að þáverandi heilbrigðisráðherra ákvað að beina því til yfirmanns stofnunarinnar að öll verkefni stofnunarinnar sem hægt væri að vinna utan höfuðborgarsvæðisins yrðu unnin úti á landi.
Í fyrirspurnartíma á Alþingi á dögunum gekk ég eftir því við heilbrigðisráðherra hvaða árangur þetta hefði borið. Í ljós kom, að eftir nokkra athugun hafi það verið mat stjórnenda stofnunarinnar að unnt væri að vinna ýmis verkefni Lyfjastofnunar á landsbyggðinni. Dæmi um þetta voru eftirlit með starfsemi lyfjabúðar sjúkrahúsa og hjúkrunarheimila. Þetta er fróðlegt, vegna þess að því hafði verið haldið fram að eðli þessarar starfsemi væri slíkt, að ekki væri unnt að vinna hana nema í Reykjavík; svo trúlegt sem það nú annars er. Nú liggur það sem sé fyrir að mat þeirra sem gerst mega vita er að unnt sé að vinna ýmis verk sem stofnuninni eru falin utan hennar og á landsbyggðinni. Þetta er athyglisvert og ber að undirstrika.
Leiðu tíðindin eru hins vegar þau, að ekki var í neinni alvöru látið reyna á þetta. Eðlilegast hefði það verið, úr því að niðurstaðan lá fyrir um að unnt væri að vinna þessi verkefni úti á landsbyggðinni, í samræmi við stefnumótun Alþingis, að tekin hefði verið um það afdráttarlaus ákvörðun. Þannig hefði verið unnið vendilega í samræmi við byggðaáætlunina og eitt skref stigið í áttina að því að opinberum störfum fjölgaði ekki minna hlutfallslega á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, eins og byggðaáætlunin stefnir að.
Þess vegna er nú eðlilegt að taka þetta mál upp að nýju. Það er ástæða til þess að hvetja þá sem þessum málum ráða, til þess að ákveða staðsetningu þessara verkefna úti á landi, svo sem byggðaáætlun kveður á um og búið er að sýna fram á að vel er framkvæmanlegt.
Höfundur er alþingismaður.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica