Greinar/Ræður

Varpar ljósi á umdeilt mál

29.2.2000

EINAR K. Guðfinnsson, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, segist munu beita sér fyrir því að nefndin fjalli sérstaklega um skýrslu um áhrif Kvótaþings og Verðlagsstofu skiptaverðs á íslenskan sjávarútveg sem sjávarú

EINAR K. Guðfinnsson, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, segist munu beita sér fyrir því að nefndin fjalli sérstaklega um skýrslu um áhrif Kvótaþings og Verðlagsstofu skiptaverðs á íslenskan sjávarútveg sem sjávarútvegsráðherra kynnti í síðustu viku. Einar segist sammála megin niðurstöðu skýrslunnar en einnig komi margt í niðurstöðum hennar á óvart. Einar segir skýrsluna varpa ljósi á umdeilt mál. "Ég held að þegar lögin um Kvótaþing og skyld lög voru samþykkt hafi margir gert það með óbragð í munninum. Mér sýnist höfundur skýrslunnar staðfesta að þessi lög hafi ekki haft það í för með sér sem þó sumir væntu. Hins vegar er ýmislegt í skýrslunni sem kemur mér á óvart. Fyrirfram hefði ég til dæmis talið að Kvótaþing hefði meiri áhrif á verð á aflamarki en höfundur skýrslunnar telur."

Verðbréfaþingsleiðin ekki talin heppileg

Einar segist ekki gera sér fyllilega grein fyrir því hvernig hægt verði að haga uppboðskerfi Kvótaþings í líkingu við það sem gert er á Verðbréfaþingi Íslands, líkt og lagt er til í skýrslunni. Einar bendir á að þegar verið var að undirbúa lögin um Kvótaþing hafi sjávarútvegsnefnd kannað þessa leið sérstaklega en það hafi þó ekki verið niðurstaðan. Einar segist sammála skýrsluhöfundi um að takmörkun á framsali aflamarks hafi ekki komið í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótakaupum. Hann segir það þó pólitískt álitamál hvort takmarka eigi viðskipti með aflamark á einhvern hátt. "Sjálfur hef ég talið eðlilegt að skip veiði sem mest af sínum aflaheimildum, enda sé það forsenda þess að veiðiréttur er bundinn við skip." Einar segist munu beita sér fyrir því að sjávarútvegsnefnd fjalli sérstaklega um skýrsluna en bendir á að allar stórar ákvarðanir í fiskveiðistjórnunarmálum bíði niðurstöðu Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu svokallaða. "Ég hef áhuga á því að fá höfund skýrslunnar á okkar fund til þess að fara yfir þessi mál. Þau eru flókin og því er nauðsynlegt að sjávarútvegsnefnd setji sig vel inn í þau. Það yrði til góða fyrir umræðuna á Alþingi," segir Einar.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica