Greinar/Ræður

Þróunarsjóður greiði fasteignagjöld eins og aðrir

5.2.2000

EINAR K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti á fimmtudag fyrir frumvarpi sem miðar að því að fella á brott úr lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins ákvæði sem segja svo til um að sj

EINAR K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti á fimmtudag fyrir frumvarpi sem miðar að því að fella á brott úr lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins ákvæði sem segja svo til um að sjóðurinn skuli undanþeginn greiðslu fasteignagjalda.

Í ræðu sinni rakti Einar að við setningu laga um Þróunarsjóðinn hefði verið ákveðið að sjóðurinn fengi heimild til að leysa til sín og eignast fiskvinnsluhúsnæði. Hins vegar virtist sem gert hafi verið ráð fyrir að eignarhald Þróunarsjóðs væri ávallt til skamms tíma og það hefði verið meginforsenda þess að sjóðurinn væri undanþeginn greiðslu fasteignagjalda. Einar benti hins vegar á að Þróunarsjóður sjávarútvegsins hefði nú um nokkurra ára skeið átt húsnæði bæði á Patreksfirði og Ísafirði og vegna áðurnefndrar undanþágureglu hefði hann ekki þurft að greiða fasteignagjöld til viðkomandi sveitarfélaga frá því hann eignaðist húsin. Þetta hlyti að teljast óeðlilegt, öll rök hnigju að því að sjóðurinn greiddi fasteignagjöld eins og aðrir. Jafnframt munaði sveitarfélögin um viðkomandi fjármuni, þótt e.t.v. væri ekki um stórar tölur að ræða í því sambandi.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica