Greinar/Ræður

Stjórnmálaályktun Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

10.10.2006

Stjórnmálaályktun Kjördæmisþings Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi haldinn á Ísafirði 7. og 8. október 2006 samþykkir eftirfarandi ályktun:

Eftir farsæla setu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn undanfarin ár hefur Ísland færst ofar á flestum þeim mælistikum er mæla frammistöðu þjóða og gildir einu hvort mældur er efnahagslegur árangur, velferð, menntun, mannréttindi eða gæði opinberrar stjórnsýslu. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur frumkvæði og einkaframkvæmdir blómstrað og meðal annars alið af sér ,,íslensku útrásina". Nauðsynlegt er á tímum mikilla framkvæmda og uppgangs í þjóðfélaginu að áfram verði haldið fast um taumana í ríkisfjármálum og ekki verði snúið aftur til aukinna ríkisafskipta á vettvangi atvinnulífs þjóðarinnar.

Háskólar eru ein mikilvægasta forsenda öflugar byggðaþróunar. Kjördæmisþing leggur áherslu á að sú reynsla sem skapast hefur af háskólastarfi í Borgarfirði og Skagafirði verði nýtt til að efla háskólastigið í öðrum hlutum kjördæmisins. Jafnframt leggur kjördæmisþing áherslu á að rannsóknarstofnanir verði byggðar upp í tengslum við háskóla á landsbyggðinni.

Símenntunarmiðstöðvar eru mikilvægur vettvangur fólks til að auka við menntun sína í heimabyggð. Slíkar stofnanir gegna einnig veigamiklu stuðningshlutverki við nemendur í fjarnámi á framhalds- og háskólastigi. Áframhaldandi uppbygging símenntunar samhliða því að efla framhaldsskóla í héraði og bæta aðgengi að háskólamenntun, er í auknum mæli forsenda þess að byggð vaxi og dafni.

Kjördæmisráð fagnar ákvörðun menntamálaráðherra um Fjölbrautarskóla Snæfellinga og Menntaskóla Borgafjarðar. Jafnframt hvetur fundurinn til að kostir einkavæðingar menntakerfisins verði nýttir enn frekar.

Samgöngur eru lykilþáttur í að byggðir landsins nái að dafna og búseta standi traustum fótum. Þá eru greiðar samgöngur einnig forsenda áframhaldandi uppbyggingar ferðaþjónustunnar sem gegnir sífellt stærra hlutverki í atvinnulífi þjóðarinnar. Kjördæmisþingið fagnar því að nú skuli á ný vera framundan átak í uppbyggingu samgöngumannvirkja í landinu og bendir á að í Norðvesturkjördæmi eru mörg brýn verk framundan á þeim vettvangi. Sérstaka athygli hefur vakið sú vinna sem lögð hefur verið af mörkum til að bæta umferðaröryggi og vekja vegfarendur til umhugsunar og ábyrgrar hegðunar í umferðinni undir forystu samgönguráðherra..

Þá lýsir þingið þeim eindregna vilja að áfram skuli innanlandsflugvöllur vera staðsettur innan borgarmarka höfuðborgarinnar, ekki síst með öryggissjónarmið Íslendinga að leiðarljósi.

 Annar mikilvægur þáttur í að skapa góð búsetuskilyrði um land allt er markviss uppbygging á fjarskiptum og háhraðatengingum. Með tilkomu Fjarskiptasjóðs væntir kjördæmisráð þess að verulegar framfarir verði á þessu sviði á næstunni. Nauðsynlegt er að tryggja að landsmenn allir hafi greiðan aðgang að nútímafjarskiptaþjónustu á sanngjörnum kjörum.

Víða um land hafa samfélög verið í vörn vegna þróunar í hefðbundnum atvinnugreinum landsbyggðarinnar, sjávarútvegi og landbúnaði. Ný arðbær störf hafa ekki orðið til á landsbyggðinni í nægilegum mæli. Það er viðvarandi verkefni stjórnvalda að tryggja að atvinnulíf á landsbyggðinni líði ekki fyrir samgönguleysi og háar álögur s.s. óhóflegan flutningskostnað. Það er einnig skylda stjórnvalda að huga að því að störf á vettvangi ríkisins séu í boði á landsbyggðinni en einskorðist ekki við höfðborgarsvæðið. Áfram skal haldið flutningi verkefna og ríkisstofnana til landsbyggðarinnar. Í því sambandi má horfa til flutnings Náttúrufræðistofnunar í Norðvesturkjördæmi.

Kjördæmisráð styður aðgerðir stjórnvalda er miða að lækkun matvöruverðs og hvetur til málefnalegrar umræðu um íslenska matvælaframleiðslu. Nauðsynlegt er að íslenskur landbúnaður verði áfram þróttmikil atvinnugrein til hagsbóta fyrir neytendur og byggðir landsins.

 Þó skoðanir verði ætíð skiptar um skipan sjávarútvegsmála, er það fagnaðarefni að minni deilur standa nú um þau mál en jafnan áður. Framundan eru þó stór viðfangsefni enda verður sjávarútvegur um ókomin ár burðarás í íslensku efnahagslífi. Kjördæmisráð hvetur til þess að hvalveiðar í atvinnuskyni hefjist hið fyrsta.

Kjördæmisráð leggur áherslu á að virðing fyrir umhverfi og náttúru séu hluti af ábyrgri stefnu stjórnvalda þar sem saman þarf að fara skynsamleg nýting auðlinda og verndun umhverfis. Auka þarf rannsóknir og þekkingaröflun á sviði umhverfismála til að vinna að umhverfisvænni lausnum á sviði orkuöflunar, landnýtingar svo og endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs og aukaafurða.

Aðlögun nýrra íbúa frá erlendum ríkjum í atvinnulífi og menningu Íslendinga hefur víðast hvar gengið vel og hafa stjórnvöld brugðist skynsamlega við örum breytingum á því sviði. Um leið og Íslendingar bjóða nýja íbúa velkomna er nauðsynlegt að marka enn skýrari stefnu í málefnum þeirra, einkum á vinnumarkaði.

Ungt fólk vill gjarnan búa á Íslandi vegna þess að vel er búið að fjölskyldum og skilyrði til barnauppeldis eru góð. Sífellt þarf þó að gæta þess að allir þegnar landsins eigi jafna möguleika og hafi, óháð búsetu, aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu og menntun á öllum skólastigum. Hluti af öflugri heilbrigðisþjónustu og menntun er að unnið sé markvisst að því að koma í veg fyrir og uppræta neyslu ólöglegra vímuefna. Sérstaklega þarf að huga að stuðningi við aðstandendur vímuefnaneytenda.

Leita þarf leiða til að gera eldri borgurum landsins kleift að hafa sveigjanlegri starfslok og nýta þar með krafta og reynslu þeirra sem kjósa að láta af störfum síðar en hefðbundinn eftirlaunaaldur gerir nú ráð fyrir.

Fjölskyldustefna stjórnvalda verður að taka mið af því að bæði kynin hafi jafna möguleika á því að leggja sitt af mörkum, innan fjölskyldunnar sem og á vinnumarkaði. Vinna þarf markvisst að því að draga úr kynbundnum launamun.

Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár hafa Íslendingar lifað eitt mesta velsældarskeið í sögu þjóðarinnar. Engu að síður eru mörg úrlausnarefni framundan í Norðvesturkjördæmi. Kjördæmisþing Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi skorar á íbúa svæðisins að tryggja Sjálfstæðisflokknum öfluga kosningu til Alþingis á vori komandi og gera gott samfélag enn betra.



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica