Breytingar í tengslum við kjarasamninga
Einar Guðfinnsson segir breytinga að vænta á kvótakerfinu
EINAR K. Guðfinnsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, telur að gerðar verði breytingar á kvótakerfinu í vetur í tengslum við kjarasamninga við sjómenn. Mikil óánægja sé meðal þjóðarinnar með ýmsa þætti kvótakerfisins og hún nái inn í raðir þingmanna, sem í vaxandi mæli geri sér grein fyrir afleiðingum framsalsins og þess háa verðs sem sé á aflaheimildum.
"Ég hef litið svo á að þetta verði samofinn þáttur í kjarasamningum við sjómenn í vetur. Meðal sjómanna er orðinn það mikill þungi í kröfunni um einhvers konar breytingar á þessu aflamarkskerfi að ég hef talið óhjákvæmilegt að það yrðu gerðar breytingar," sagði Einar.
Einar sagðist ekki vera að halda því fram að sjómenn myndu hafa forystu um breytingar á fiskveiðikerfinu. Þingmenn gerðu sér grein fyrir óánægjunni og myndu án ef leitast við að koma á móts við gagnrýnisraddirnar.
Breytingar af tvennum toga
"Það er tvennt sem maður verður einkum var við í þessari umræðu. Í fyrsta lagi er mikil gagnrýni á ýmsa fylgifiska framsalskerfisins. Ég geri mér þó grein fyrir að framsal með einhverjum hætti er óumflýjanlegur þáttur í kvótakerfi meðan það er notað til að stýra fiskveiðum, en breytingar með einhverjum hætti eru hins vegar nauðsynlegar. Í öðru lagi tel ég að verðlagning aflaheimildanna, bæði leiga og verð á föstum kvótanum, sé ekki í einu neinu samræmi við rekstrarárangurinn í greininni og arðinn sem þar á sér stað. Í mínum huga er þar um þvílíka mótsögn að ræða að það geti ekki farið hjá því að þar verði gerðar breytingar á þessum vetri."
