Greinar/Ræður

Tímamót á Vestfjörðum

12.12.1995

Sex sveitarfélög á norðanverðum Vestfjörðum sameinast senn. Einar K. Guðfinnsson segir að í ákvörðun um sameiningu felist miklir möguleikar.

ÓHÆTT er að segja að tímamót hafi orðið á Vestfjörðum sl. laugardag, þegar íbúar sex sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum ákváðu sameiningu þeirra með miklum atkvæðamun. Þrír fjórðu íbúanna guldu jáyrði sitt við hugmyndinni um sameiningu Ísafjarðarkaupstaðar, Suðureyrarhrepps, Flateyrarhrepps, Mosvallahrepps, Mýrarhrepps og Þingeyrarhrepps. Með mjög afdráttarlausum hætti var þessi ákvörðun því tekin.

Það er enginn vafi á því að aðstæður hafi á marga lund verið íbúum Vestfjarða erfiðar upp á síðkastið. Örðugleikar í atvinnumálum vegna þorskaflaskerðinga og þau áföll sem yfir hafa dunið gera það enn nauðsynlegra en fyrr að fylkja liði og takast sameiginlega á við verkefnin. Ákvörðun íbúa sveitarfélaganna sex um síðustu helgi er þýðingarmikið skref í þá átt.

Miklar breytingar á hlutverki sveitarfélaga

Miklar breytingar eru að verða á hlutverki sveitarfélaganna. Á næsta ári munu þau taka að fullu við rekstri grunnskólanna. Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir verulegum jöfnunaraðgerðum í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, er það engu að síður ljóst að auðveldara verður fyrir hinar stærri einingar í flestum tilvikum að takast á við ný og viðurhlutamikil verkefni.

Allar líkur eru einnig á því að áfram verði haldið á þeirri braut að auka verkefni sveitarfélaganna. Að því hníga líka margvísleg efnahagsleg og pólitísk rök. Nefna má í því sambandi að hlutur íslenskra sveitarfélaga í samneyslunni er nú þrefalt til fimmfalt minni en gengur og gerist á öðrum Norðurlöndum. Tillögur nefndar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, Sveitarfélaganefndar, sem birtust í október 1992, gera og ráð fyrir því að sveitarfélögin taki að sér stóraukin verkefni. Óhjákvæmilega mun það hafa áhrif á umdæmaskipan sveitarfélaganna, gangi þær hugmyndir eftir.

Vestfjarðagöng ­ forsenda sameiningar

Vestfjarðagöngin sem eru núna að verða að veruleika munu hafa mikil og farsæl áhrif á byggð á Vestfjörðum. Tenging byggðarlaganna hlýtur að styrkja stöðu þeirra og skapa grundvöll fyrir nýsköpun í atvinnulífi jafnt á sviði framleiðslu sem þjónustu. Í sérstökum viðauka við skýrslu Sveitarfélaganefndar er beinlínis sagt að jarðgöng á norðanverðum Vestfjörðum séu forsenda sameiningar sveitarfélaga á því svæði. Þetta hefur gengið eftir. Um líkt leyti og jarðgöngin eru að opnast fyrir umferð ákveða íbúar sveitarfélaganna sex sameiningu.

Ör þróun í sameiningarmálum á Vestfjörðum

Óvíða hefur sameining sveitarfélaga verið örari en einmitt á Vestfjörðum. Árið 1987 sameinuðust fimm hreppar í Austur-Barðastrandarsýslu í eitt sveitarfélag, Reykhólahrepp. Árið 1990 sameinaðist Auðkúluhreppur Þingeyrarhreppi. Í ársbyrjun 1992 sameinuðust Fellshreppur og Óspakseyrarhreppur í eitt sveitarfélag, Broddaneshrepp. Í Vestur-Barðastrandarsýslu sameinuðust fjögur sveitarfélög, Patrekshreppur, Bíldudalshreppur, Barðastrandarhreppur og Rauðasandshreppur í eitt sveitarfélag hinn 11. júní í fyrra, Vesturbyggð. Nauteyrarhreppur við innanvert Ísafjarðardjúp sameinaðist sama dag Hólmavíkurhreppi og ennfremur sameinaðist Snæfjallahreppur við Ísafjarðardjúp Ísafjarðarkaupstað. Loks varð til eitt sveitarfélag, Súðavíkurhreppur, er Reykjafjarðarhreppur, Súðavíkurhreppur og Ögurhreppur við Djúp sameinuðust í ársbyrjun í ár. Ef tekið er tillit til sameiningarkosninganna nú um síðustu helgi blasir við að á átta árum hefur sveitarfélögum á Vestfjörðum í byggð fækkað um nítján, verða alls tólf í stað þrjátíu og eins áður. Þetta er gríðarleg breyting á stjórnsýslu í einu kjördæmi.

Miklir möguleikar

Skiptar skoðanir hafa verið um þann beina fjárhagslega ávinning sem hlýst af sameiningu af þessu tagi. Um það mál má sjálfsagt alltaf deila, enda ljóst að árangurinn ræðst mjög af þeim ákvörðunum sem sameinaðar sveitarstjórnir taka hver fyrir sig; þar veldur hver á heldur eins og víðar. Hitt skiptir mestu máli að íbúarnir hafa ákveðið að fylkja sameiginlega liði og takast saman á við þau margvíslegu og stóru verkefni sem framundan eru. Í þeirri ákvörðun felast mjög miklir möguleikar. Það er öruggt að ekki muni af veita. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica