Hvalveiðar ræddar í Kaíró
EINAR K. Guðfinnsson, alþingismaður, ræddi hvalveiðar og skynsamlega nýtingu hvalastofna á 98. þingi Alþjóðaþingmannasambandsins, IPU, stóð yfir í Kaíró, Egyptalandi, dagana 11.16. september. Hann lagði áherslu á að hvalveiðar við Ísland væru í fullu samræmi við alþjóðasamþykktir um sjálfbæra og skynsamlega nýtingu sjávarauðlinda, þ. á m. Istanbul-samþykkt IPU frá árinu 1995. Einar sagði fjölgun hvala við Ísland geta ógnað þorskstofninum, til langs tíma litið. "Þannig getur hvalveiðibann, ofvernd einnar sjávarauðlindar, raskað hinu viðkvæma jafnvægi í lífkerfi hafsins, og ógnað fjölbreytileika tegunda. Slík stefna hlýtur að ganga gegn markmiðum Rio-sáttmálans um sjálfbæra þróun og skynsamlega nýtingu auðlinda", sagði Einar.
Einar hvatti þingmenn IPU til þess að skoða málefni hvalveiða út frá nýtingarsjónarmiðum, hafna öfgakenndum verndunarsjónarmiðum og skoraði á ríkisstjórnir aðildarríkja IPU að virða markmið alþjóðasáttmála um auðlindanýtingu. Hann gagnrýndi afstöðu þeirra ríkja sem hefðu samþykkt sáttmála í anda skynsamlegrar nýtingar sjávarauðlinda á borði (s.s. Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu), en styddu hins vegar í raun öfgasamtök á borð við Greenpeace.
