Greinar/Ræður

Vona að leiðir liggi saman síðar

9.3.1995

Einar Guðfinnsson um brottför Halldórs Hermannssonar

"VIÐ sjálfstæðismenn viljum skoða spurninguna um afstöðu til Evrópusambandsins betur. Við bendum á að ríkjaráðstefnan, sem mun væntanlega breyta eðli og uppbyggingu Evrópusambandsins í grundvallaratriðum, verður ekki haldin fyrr en á næsta ári og mun væntanlega standa í nokkur ár. Við segjum einfaldlega að það sé ótímabært að taka afstöðu til einhverrar framtíðar með Evrópusambandinu, sem við vitum ekki hvernig lítur út," segir Einar K. Guðfinnsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum.

Halldór Hermannsson, sem um langan tíma hefur verið einn af áhrifamönnum í Sjálfstæðisflokknum á Vestfjörðum, hefur sagt skilið við flokkinn vegna ágreinings við hann um afstöðuna til Evrópusambandsins. Halldór vill að Ísland óski eftir aðild að ESB. Hann hefur lýst yfir stuðningi við Alþýðuflokkinn.

"Mér þykir mjög miður að Halldór skuli að þessu sinni ætla að kjósa Alþýðuflokkinn. Okkar leiðir hafa jafnan legið saman. Ég vona að þó að það skilji með okkur að þessu sinni þá eigi leiðir okkar eftir að liggja saman fyrr en síðar. Ég vek athygli á því að það er einungis í þessu máli sem ber á milli okkar og hans," sagði Einar.

Einar sagði að spurningin um afstöðu til ESB hefði ekki verið ofarlega á baugi fram að þessu í kosningabaráttunni. Það væru önnur mál sem brynnu á kjósendum á Vestfjörðum.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica