Greinar/Ræður

Eigum að hefja tvíhliða viðræður við EB um lækkun tolla

16.4.1991

ÍSLENDINGAR eiga að hefja tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið um lækkun tolla á fiskafurðum, enda höfum við öll tromp á hendi til að ná hagkvæmum samningum, telur Einar K. Guðfinnsson, framkvæmdastjóri á Bolungarvík, sem skipar 2. sætið á lista sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Hann segir Íslendinga geta gengið óhrædda og upprétta til slíkra samninga og EB-grýla Framsóknarmanna sé tilbúningur þeirra og hræðsluáróður.

"Mín stefna í þessu máli er alveg klár og skýr. Sjálfstæðisflokkurinn mótaði á sínum tíma þá afstöðu að leita eftir tvíhliða viðræðum við Evrópubandalagið um lækkun á tollum á fiskafurðum. Við þá stefnumörkun var haft í huga að verið væri að taka á því sem þýðingarmest væri fyrir okkur Íslendinga. Ríkisstjórnin kaus að fara aðrar leiðir og það hefur ekki skilað árangri," segir Einar K. Guðfinnsson framkvæmdastjóri á Bolungarvík.

"Framsóknarflokkurinn hefur í kosningabaráttunni reynt að beita einhvers konar EB-grýlu á þjóðina. Hér á Vestfjörðum hafa menn séð í gegnum þennan tilbúning og hræðsluáróður og málflutningur okkar Sjálfstæðismanna hefur hitt í mark. Við göngum því óhræddir og uppréttir til þessara viðræðna, en hörmum um leið að ríkisstjórnin skuli hafa kosið að ganga til EBviðræðnanna án þess að leita umboðs Alþingis.

Það er ekki pólitískur ágreiningur í landinu um að allir samningar við Evrópuþjóðirnar eigi að miðast við að við höldum óskoruðu fullveldi og yfirráðarétti yfir auðlindum hafsins í kringum landið. Áróður andstæðinga okkar í þessum efnum er því rakalaus og ég held við höfum öll tromp á hendi til að ná hagstæðum samningum. Evrópuþjóðirnar eru orðnar háðar okkar fiskafurðum og ég held að þörf þeirra fyrir hagkvæma og skynsamlega samninga sé ekki minni en okkar."

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica