Aflinn verðmeiri
BOLUNGARVÍK - ÞRÁTT fyrir nokkra minnkun á afla togar anna Dagrúnar og Heiðrúnar frá Bolungarvík, á síðasta ári, jókst aflaverðmæti þeirra beggja mið að við árið á undan. Ástæðan er hækkandi fiskverð bæði innan lands og utan, að sögn Einars K. Guðfinnssonar útgerðarstjóra hjá Einari Guðfinnssyni hf. sem gerir skipin út. Heiðrún aflaði alls 2.415 tonna í fyrra og var heildaraflaverðmæti 142,7 milljónir króna. Árið á undan varð aflinn á hinn bóginn 3.034 tonn en verðmætið alls 129,8 milljónir.
Dagrún fiskaði 3.523 tonn að verðmæti 189,4 milljónir króna í fyrra, en árið áður varð aflinn 3.655 tonn að verðmæti 159,8 milljónir króna.
Einar K. Guðfinnsson sagði að aflasamdrátturinn stafaði meðal annars af því að kvótareglur hefðu verið þrengri í fyrra en á árinu á undan. Fyrir vikið hefðu sóknardag ar verið færri. Einnig hefði útgerð in ákveðið að fara sparlega með kvótann fyrri hluta ársins og því hefðu togarar fyrirtækisins til dæmis ekki tekið þátt af fullum krafti í aflahrotunni sem kom í nokkrar vikur síðastliðið sumar. Aflinn í haust hefði síðan orðið mun minni almennt hjá togaraflotanum í heild, en menn höfðu vænst. Sæist það meðal annars á því að framboð hefði verið á þorskkvóta undir lok síðasta árs, en verulegur skortur á hinn bóginn verið árið á undan.
Togararnir Heiðrún og Dagrún hafa staðið undir hráefnisöflun Ís húsfélags Bolungarvíkur hf. Hefur jafnan verið lagt kapp á að vinnslan í landi hefði forgang að afla togar anna, þó svo að skipin hafi flutt nokkuð út af ísvörðum fiski á er lenda markaði. Í fyrra seldu togar arnir um 1.130 tonn á erlendum mörkuðum samanborið við 1.430 tonn árið á undan. Að langmestu leyti var hér um að ræða aukateg undir, sem ekki hentuðu nægilega vel fyrir vinnsluna í landi.
