Tryggjum Einari Kristni öflugan stuðning
NÆSTKOMANDI laugardag 9. nóvember, fer fram opið prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi. Einar Kristinn Guðfinnsson hefur setið á Alþingi sl. tólf ár og verið síðustu tvö kjörtímabil í forystu sem 1. þingmaður Vestfjarða. Það er ljóst að sú reynsla sem hann hefur áunnið sér á þingmannsferli sínum mun reynast gott veganesti í störfum hans fyrir hið nýja kjördæmi.
Einar Kristinn er heiðarlegur og vinnusamur maður og hefur ávallt lagt mikið upp úr því að hafa samráð við bakland sitt. Þetta kom berlega í ljós þegar deilurnar um stjórnkerfi smábáta stóðu yfir.
Ég vil hvetja alla flokksbundna sjálfstæðismenn og stuðningsmenn flokksins til að mæta á kjörstað nk. laugardag. Tryggjum Einari Kristni öflugan stuðning í forystusveit Sjálfstæðisflokksins.
Tryggvi Ársælsson skipstjóri, Tálknafirði, skrifar:
