Baráttumaður fyrir Norðvesturkjördæmi
EINAR Kristinn Guðfinnsson hefur á undanförnum árum getið sér orð fyrir afdráttarlausar skoðanir í sjávarútvegmálum. Hann hefur ekki alltaf farið troðnar slóðir, en hins vegar haft að leiðarljósi að berjast fyrir hagsmunum sjávarútvegsins og þar með um leið staðið vörð um byggðirnar úti um landið sem byggjast á sjávarútvegi.
Ég hef eins og margir aðrir fylgst með Einari í gegn um árin og séð að þar fer maður sem vill af einlægni berjast fyrir byggðirnar sem hann hefur starfað í umboði fyrir. Þess vegna bind ég miklar vonir við hann sem þingmann í nýju Norðvesturkjördæmi og veit að líkt og hann hefur verið harðsnúinn baráttumaður fyrir Vestfirði sem þingmaður þess kjördæmis verður hann jafn harður baráttumaður fyrir hið nýja kjördæmi, Norðvesturkjördæmi.
Þess vegna hvet ég fólk til þess að fylkja sér um Einar K. Guðfinnsson og tryggja það að hann fái glæsilega útkomu í prófkjörinu 9. nóvember næstkomandi.
Gunnar Bergmann Traustason, sölustjóri á Fiskmarkaði Íslands, Snæfellsbæ, skrifar:
