Einar Kristinn, traustsins verður!
ÁGÆTU stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Nú á laugardaginn kemur, hinn 9. nóvember, göngum við að kjörborði og veljum okkur forystu í nýju og stærra kjördæmi en við höfum áður þekkt. Kjördæmi sem spannar nálægt fjórðungi landsins okkar. Í þessu nýja kjördæmi er gríðarlega mikilvægt að við veljum okkur öflugan og sigurstranglegan framboðslista sjálfstæðismenn góðir. Við höfum úr mörgum og álitlegum nöfnum að velja, frambjóðendum með mikla og víðtæka reynslu, það ríður á að við náum að stilla upp sterku liði. Í mínu óskaliði verður nafn Einars Kristins Guðfinnssonar mjög ofarlega á blaði. Einar Kristinn hefur sýnt það með framgöngu sinni, t.a.m. innan ferðamálaráðs, að þar fer maður sem er ábyrgur gerða sinna. Fylkjum liði, sjálfstæðismenn góðir, og tryggjum Einari Kristni gott veganesti á laugardaginn kemur. Tryggjum Einari Kristni annað af tveimur efstu sætum listans.
Björn Bjarki Þorsteinsson, bæjarfulltrúi í Borgarbyggð, skrifar:
