Greinar/Ræður

Mýraljós í efnahagslífinu

8.9.2010

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kvartaði undan því í orðaskiptum við mig á Alþingi sl. föstudag, að stjórnarandstaðan sæi ekki ljósið í náttmyrkri efnahagsmálanna. En hvaða ljós er hún að benda á? Það eru augljóslega mýraljós, villuljósin, sem ríkisstjórnin fylgir og gleðst svo yfir þessi dægrin.

Það sem er alvarlegt í máli stjórnarliða er tilraunin til þess að blekkja. Það hófst allt með langhundum Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í blöðunum í síðasta mánuði. Þar var tónninn sleginn og hann var þessi. Þetta er búið að vera ofboðslega erfitt, en nú erum við að sjá afrakstur erfiðisins. Landið er að rísa í efnahagslegum skilningi.

Þetta var síðan endurtekið fyrsta þingdegi að loknu sumarhléi Alþingis, bæði af fjármála og forsætisráðherra, fimmtudaginn 2.september.

En örlögin eru grimm og gráglettin. Daginn eftir birti Hagstofan útreikninga sína. Þeir sýndu allt aðra mynd. Þann sama dag skiptumst við forsætisráðherra á orðum. Og það var eins og hún neitaði að trúa staðreyndunum. Þær rímuðu ekki við áróðursplön ríkisstjórnarinnar og ráðherann talaði eins og ekkert hefði gerst. Sama blekkingar glansmyndin var dregin upp.

Staðreyndirnar eru þessar. Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gekk frá samstarfssamningi sínum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á haustdögum 2008, lá til grundvallar tiltekin hagspá sem sjóðurinn vann. Þar var gert ráð fyrir miklum samdrætti landsframleiðslu árið 2009, eða um 9,6%. Nú liggur fyrir að sá samdráttur varð minni, eða um 6,8%%. Ekki vegna verka núverandi ríkisstjórnar. Aðrar aðstæður réðu því. En í hagspá AGS var líka gert ráð fyrir að landsframleiðslan yrði lítt breytt árið 2010, þrátt fyrir þessa miklu dýfu árið á undan.

Áfellisdómur og falleinkunn

Það er þess vegna fullkominn áfellisdómur um verk og verkleysi ríkisstjórnarinnar að landsframleiðslan dragist saman um 3,1°% milli ársfjórðunga, árið sem hún átti að standa í stað og það þrátt fyrir að samdrátturinn árið á undan yrði minni en ætlað var. Sú staðreynd hefði átt að  auka líkur á skarpari bata efnahagsmálanna. En hið þveröfuga gerðist.

Til skýringar á þessu má meðal annars benda á umfjöllun Peningamála Seðlabanka Íslands. Af þeim má ráða  að aðgerðir og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar á vettvangi atvinnumála eru að hægja á efnahagsbata sem ella væri orðin staðreynd.

Það er því makalaust að ráðherrar vogi sér að hreykja sér af þessari efnahags/pólitísku falleinkunn sem ríkisstjórnin er að fá þessi dægrin

Mýraljósið verður leiðarljós

Sama er að segja um verðbólguna. Nú stæra ráðherrar sig af meintum árangri. En einnig það lá fyrir frá fyrsta degi. AGS spáði því að verðbólgan yrði á þessu ári 2,7%. Enginn hefur spáð því að þau áform rætist. Þökk sé stjórnvöldum okkar, sem hafa kynnt verðbálið með skattahækkunum og kostnaðarauka gagnvart atvinnulífinu.

Ljósið sem ríkisstjórnin sér og fylgir er mýraljós, villuljós sem leiða okkur út í frekari ógöngur. Þá slóð vill enginn feta í humátt á eftir ráðvilltum stjórnvöldum. Það hefur aldrei kunnað góðri lukku að stýra að gera mýraljósin að siglingaljósi. Sérstaklega ekki við krappar aðstæður.

 

Greinin birtist í Morgunblaðinu 8. september 2010



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica