Greinar/Ræður

Þrjár rýtingsstungur á einni viku

9.2.2010

Hjá Samfylkingunni hafa menn greinilega talið að komið væri að því að kenna samstarfsaðilunum  hjá Vinstri grænum lexíuna. Láta þá vita hverjir réðu. Það var svo gert í vikunni, ekki einu sinni heldur þrisvar.

Fyrst þegar sett svar á svið leikrit í þinginu þar sem samfylkingarþingmaður spurði forsætisráðherrann um hvort nokkur bilbugur væri á því að sameina atvinnuvegaráðuneytin þrjú. Þetta var gert strax í kjölfar þess að VG hafði ályktað gegn slíkum áformum. Svar forsætisráðherra var skýrt. Jú við sameinum og VG er skuldbundið okkur með stuðning við það mál. Þar höfðu þeir það.

Næst þegar ráðherra úr liði VG hafði sett fram sjávarútvegsfrumvarp og ætlaði að láta tekjur af veiðileyfauppboði renna til sjávarbyggðanna sérstaklega. Samfylkingin notaði tækifærið ,með aðkomu iðnaðarráðherrans, til þess að hverfa frá þessum byggðasjónarmiðum og ráðstafa fjármunum þessum til annarra hluta. Alls 150 milljónum króna. Með öðrum orðum, vilji ráðherrans sem málið flutti var að engu hafður. Vaðið var inn í frumvarpið og fjármagninu svissað yfir í allt aðra farvegi en ráðherra málaflokksins vildi.

Og loks var það forsætisráðherrann enn, sem viðraði efasemdir sínar um hinn sérstaka trúnaðarmann fjármálaráðherrans í Icesavesamninganefndinni, eins og hún gerði í Kastljósinu sl. miðvikudag. Fjármálaráðherrann  hefur réttilega sagt að gagnrýninni eigi ekki að beina gegn embættismönnum heldur stjórnmálamönnum. Honum var því ljóst að gagnrýninni var ekki í raun ætlað að hitta embættismanninn fyrir, heldur forystu VG. Þess vegna hrópaði hann vanstilltur að það væru ógeðfelldar mannaveiðar þegar menn gagnrýndu embættismanninn.  Hann tók orð forsætisráðherrans til  sín og það með réttu. Fjármálaráðherrann kaus að beina reiði sinni að stjórnarandstöðunni, en meinti auðvitað forsætisráðherrann.  Gamla  Albaníuaðferðin var endurfædd. Það var öllum ljóst  sem á hlýddu.

En VG drúpir höfði,  beygir sig í duftið  og hlýðir eins og fyrri daginn.

 

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.