Greinar/Ræður

Icesavespuni aðstoðarritstjórans

12.8.2009

Steinunn Stefánsdóttir aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins skrifar leiðara síðast liðinn laugardag sem er af sama toga spunninn og málflutningur fjármálaráðherrans Steingríms J. Sigfússonar. Spuninn er sá að samþykkja beri Icesave samkomulagið ella höfum við verra af. Og svo er bætt um betur í leiðaranum og reynt að færa fyrir því rök að þau ósköp sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í formi Icesavesamningsins séu afsprengi síðustu ríkisstjórnar!

Þetta  er útúrsnúningur, til þess fallið að afvegaleiða  og  því  ekki hægt að láta ómótmælt.

Sá samningur sem nú liggur fyrir Alþingi, er á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Hann er gerður undir forræði ríkisstjórnarinnar, unninn af samninganefnd sem stjórnin skipaði og fjármálaráðherrann hefur staðfest afstöðu sína til hans með því að nota hvert tækifæri til að bera blak af niðurstöðunni. Þar ferst honum öðruvísi en forsætisráðherranum, sem reynir að þvo hendur sínar af samningnum með því að lyfta tæplega litla fingri til þess að verja þessa gjörð.

Ástæða þess að þingið fjallar svo ákaft um þennan samning er einföld. Það fyrirfinnst varla nokkur þingmaður utan Steingríms J. Sigfússonar sem treystir sér til að samþykkja hann. Þess vegna leita menn allra mögulegra leiða til að gera á honum þær breytingar sem hægt er. Með því er vitaskuld verið að segja að þessi afurð ríkisstjórnarinnar sé ómöguleg og þingið vilji ekki axla ábyrgð á henni.

Það er mikill misskilningur hjá aðstoðarritstjóranum að íslenska þjóðin eigi bara tvo kosti; þennan ólukkans samning ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, eða ekkert. Samningurinn er algjörlega í blóra við þau samningsmarkmið sem Alþingi samþykkti í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hann er ofurhlaðinn alls konar göllum og hreinum og klárum mistökum. Þar má nefna meðal annars ábendingar lögmannanna Ragnars H. Hall  og Harðar Felix Harðarsonar auk Eiríkis Tómassonar prófessors, sem sýnt hafa fram á að fyrir vegna samningsafglapa séum við að taka á okkur hundruðir milljarða að þarflausu.

Þetta lætur aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins sér í léttu rúmi liggja, svo ótrúlegt sem það er. Og bítur svo höfuðið af skömminni með því að bera í bætifláka fyrir þær þjóðir sem eru að nota ofurefli sitt til þess að þvinga okkur til nauðungarsamninga á borð við Icesave afstyrmið.  Það er varla hægt að lúta lægra í minnimáttarkennd og þarflausri pólitískri nauðhyggju.

 

Grein í Fréttablaðinu 12. ágúst 2009.



Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica