Peningarnir verða ekki til í himnaríki - en þó í háloftunum
Fyrir hönd Ferðamálaráðs Íslands býð ég ykkur hjartanlega velkomin og fagna því að sjá svo marga fulltrúa úr ferðaþjónustunni hér saman komna. Við marga get ég líka sagt, takk fyrir síðast, er við hittumst á stórglæsilegri West Norden í Færeyjum í fyrra. West Norden er sem fyrr enn eitt merkið um þann vöxt sem er í þessari mikilvægu atvinnugrein og endurspeglar ennfremur þann áhuga sem menn sýna West Norden ferðakaupstefnunni, sem er einstök á okkar slóðum.
Við undirbúning að svo stórbrotinni Ferðakaupstefnu sem West Norden er þarf að hyggja að ýmsu og margir koma að henni. Þeim vil ég öllum þakka fyrir að hafa gert þetta að veruleika. Í því sambandi vil ég í upphafi þakka Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra fyrir hans mikilsverða stuðning og atbeina ráðuneytis hans. Sérstaklega langar mig til þess að þakka ferðamálastjóra, Magnúsi Oddssyni og starfsfólki Ferðamálráðs fyrir mikið starf, flugfélögunum sem flutt hafa gesti til okkar þökkum við þeirra þýðingarmikla framlag, borgaryfirvöldum í Reykjavík fyrir þeirra þýðingarmikla þátt, skipuleggjendunum, Congress Reykjavík fyrir framúrskarandi vinnu og öllum þeim öðrum sem hafa lagt hönd á plóginn
Þetta er í 19. sinn sem slík ráðstefna er haldin hér á landi. Ég held að það sé óhætt að segja að ár frá ári hafi hún vaxið, í samræmi við þann vöxt sem hefur orðið í þessari atvinnugrein. Að mínum dómi fer sérlega vel á því að við þessi þrjár þjóðir, Færeyingar, Grænlendingar og Íslendingar, útverðir í norðri, efnum saman til kaupstefnu og opnum þannig sameiginlega glugga til umheimsins til þess að sýna allt það sem við höfum upp á að bjóða. Þá er sérstök ástæða til að fagna því að nú skuli vinir okkar frá Hjaltlandseyjum kom með enn virkari þátttöku í þessum hópi. Það er bæði rökrétt og eðlilegt.
Góðir gestir.
Það var eitt sinn sagt að peningar hryndu aldrei yfir mann af himnum ofan, maður þyrfti að vinna fyrir þeim á jörðinni. Þetta er ábyggilega rétt. ? Svona mestan part. Í ferðaþjónustufyrirtækjunum verða engar tekjur til áreynslulaust, en þó er það svo að sú atvinnugrein kemst nú samt sem áður næst því að afsanna kenninguna sem ég lýsti. Peningarnir í ferðaþjónustunni verða að sönnu ekki til í himnaríki, - en þeir skapast þó í háloftunum, - í himninum; með ferðamönnunum sem koma til okkar eyþjóðanna með flugvélum mestan part, þó siglingar séu að nýju að eflast sem ferðamáti á okkar slóðum.
Þetta sýnir okkur enn hversu lífið er dásamlegt og ferðaþjónustan spennandi og margbreytileg atvinnugrein, sem stritar fyrir tekjum sínum á jörðu niðri til þess að tryggja að þær berist henni úr háloftunum.
Ræða flutt á West Norden ferðakaupstefnunni 14. september 2004.
