Greinar/Ræður

Vestfirðingur vikunnar - "...kalla á helv. þingmennina vestur..."

5.4.2004

Vestfirðingur vikunnar


Nafn:
Einar Kristinn Guðfinnsson.


Fædd/-ur, hvar og hvenær:
Bolungarvík 2. desember 1955.


Atvinna:
Alþingismaður.


Fjölskylda: Eiginkona mín er Sigrún Jóhanna Þórisdóttir, lengst af kennari en nú starfsmaður SP fjármögnunar og börnin eru Guðfinnur Ólafur 21 árs háskólanemi, Sigrún María 17 ára kvennaskólanemi og Pétur 13 ára grunnskólanemi.


Helstu áhugamál:
Lengst af voru stjórnmálin áhugamálið og það tók dálítinn tíma að aðlagast þegar þau urðu atvinnan. Nú er það útivera, helst gönguferðir um fagra náttúru Vestfjarða sem öllu taka fram.


Bifreið:
Isuzu Trooper, árgerð 2002 og eðalvagninn appelsínuguli, Mercedes Benz árgerð 1980.


Hvernig bíl vildir þú helst eiga?
Ekkert tekur Bensinum mínum fram og ég er óskaplega kátur yfir bílakosti mínum, en óneitanlega gæti komið sér vel að eiga nýjan Trooper.


Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Bolvískur aflaskipstjóri eða skagfirskur hrossabóndi á Syðra Skörðugili.


Uppáhalds matur?
Soðin ýsa, með almennilegu mörfloti.


Versti matur sem þú hefur smakkað?
Nú lendi ég í hremmingum, ég er slík alæta á mat. Þó rifjast upp fyrir mér alveg óskaplega vont dúfukjöt sem ég fékk eitt sinn á ráðstefnuferð suður í Marokkó.


Uppáhalds drykkur?
Vatn og undanrenna að degi til, en eitthvað verulega sterkara þegar kvöldsett er.


Uppáhalds tónlist?
Þessa dagana held ég mest upp á hina ástsælu Spaða, þó mér finnist innst inni að ekkert hafi toppað hinn ágæta karlakór vorn.


Uppáhalds íþróttamaður eða félag?
Handboltamaðurinn Patrekur Jóhannesson er minn uppáhaldsíþróttamaður ( enda er ég uppáhaldsstjórnmálamaðurinn hans) og vitaskuld er Ungmennafélag Bolungarvíkur uppáhaldsíþróttafélagið mitt.


Uppáhalds sjónvarpsefni?
Fréttir og enskar sakamálamyndir


Uppáhalds vefsíðan?
BB.is án efa og svo kemur mbl.is. Það teldist víst óskaplega sjálfhverft að nefna þá merku heimasíðu ekg.is


Besta kvikmynd sem þú hefur séð?
Ég hef aldrei skemmt mér betur yfir nokkrum kvikmyndum en Tarzan og Roy Rogers. En ætli það sé ekki Little big men, sem er mér hvað eftirminnilegust.


Fallegasti staður hérlendis?
Þetta er erfið spurning, sem ég hef oft velt fyrir mér og það væri enginn vandi að telja upp marga staði. En er það nokkuð sem tekur fram Hornvíkinni á fögru sumarkvöldi, sem státar af ægigirtu Hælavíkurbjargi og Hornbjargi?


Fallegasti staður erlendis?
Ég hef víða séð fallega staði, en í fyrra fór ég til Slóveníu, þar er ótrúlega fallegt og það land er mér núna efst í huga.


Ertu hjátrúarfull(ur)?
Já.


Uppáhalds heimilistækið?
Ég geri ekki upp á milli þeirra systra, þvottavélar og uppþvottavélar.


Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir?
Heima er best.


Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna? Óheiðarleiki.


Hvað gerir þú til að láta þér líða vel?
Njóta lífsins í góðra vina hópi.


Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta rætast?
Já.


Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Ætli það sé ekki þegar ég gleymdi að ná í hana dóttur mína 6 ára gamla í bláókunnugan skóla þar sem hún þekkti tæpast nokkra sálu.

Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú breyta?
Mikið ofboðslega hefði ég gaman af því að kalla á (helv.) þingmennina vestur og láta þá heyra það!


Lífsmottó?
Ætli mér verði ekki helst á að vitna í Halldór Laxness ( og það með tilvísunarmerkjum og gæsalöppum) "Þegar öllu er á botninn hvolft þá fer allt einhvernveginn þótt margir efist um það á tímabili".

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica