Greinar/Ræður

Ljúf skylda

8.11.2003

Þegar mikið liggur við stendur íslenska þjóðin saman. Þá víkur dægurrígur, stundarþras og karp um hversdagslega hluti. Þá eigum við eina sál, eins og eitt sinn var ort um aðra þjóð á örlagastund.
Við höfum sýnt hverju við fáum áorkað, þegar við tökum saman höndum og leggjum góðum málstað lið. Þá munar vissulega um samtakamáttinn, en hinu skulum við heldur ekki gleyma; það munar um okkur hvert og eitt.
Nú hafa samtök og félög sem hvert um sig hafa unnið ötullega í þágu góðs málstaðar ákveðið að stefna smeiginlega að einu og sama markmiðinu. Þetta eru helstu félög og samtök sem láta sig varða hag barna með sérþarfir. Og nú kosta þau kapps um, að safna fjármunum til þess að koma upp aðstöðu og húsnæði fyrstu ráðgjafamiðstöðvar okkar fyrir aðstandendur langveikra, fatlaðra og þroskaheftra barna, sem kölluð verður Sjónarhóll. Með því mun þjónusta eflast, aðstaða batna og aðstandendum auðveldað að nýta sér þau úrræði sem hið öfluga íslenska heilbrigðis- og velferðarkerfi býður upp á.
Þess vegna þurfa þau á okkar aðstoð og framlagi að halda.
Við erum öflug og vel megandi þjóð sem vill hlúa að þeim sem eiga um sárt að binda vegna veikinda. Þar er þörf sem við viljum bæta úr. Okkur Íslendingum öllum er það fyrst og fremst ljúft að leggja okkar af mörkunum, til að bæta hag samlanda okkar sem þurfa stuðnings okkar við.
Nú um helgina verður efnt til sannkallaðs þjóðarátaks í þágu þessa góða málstaðar. Ég hvet alla til þess að leggja sitt af mörkum og láta þannig fagran draum rætast um aðstöðu í þágu barna sem stríða við langvarandi veikindi eða fötlun.

Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.