Það gengur allt eftir áætlun
Það gengur allt eftir áætlun. Hvalveiðar eru hafnar, mótmælin byrjuð og fjölmiðlasjóið í algleymingi. Allt eftir bókinni. Allt eins og við bjuggumst við. Mótmælin eru að vísu langt frá því sem fjandmenn hvalveiða höfðu sagt okkur. Sjálf Greenpeace samtökin nenntu ekki að skrifa stafkrók á heimasíðu sína um hvalveiðarnar fyrr en eftir dúk og disk. Einhver öfgasamtök suður í Bretlandi skipulögðu tölvupóstsendingar til þess að mótmæla, einhverjir hlýddu. Eitt og eitt bréf barst þingmönnum og slatti opinberum stofnunum. Ekker til að hafa áhyggjur af.
Það er nefnilega komið á daginn. Áhugi mótmælasamtaka er ekki mjög bundinn við hvalveiðar um þessar mundir. Það er líkast til arðvænlegra að beina sjónum sínum annað. Meira upp úr því að hafa að fjárfesta í rækilegum mótmælum gegn frjálsum viðskiptum, stríðinu í Írak eða öðru því sem fangar athygli fjölmiðlanna almennilega. Það er betri markaðssetning, skilar meiru í aðra hönd og dugir betur til þess að halda úti heimasíðum, skrifstofum og greiða farareyri fyrir atvinnumótmælendurnar á fjarlægar slóðir og spennandi staði.
Má sjálfstæð þjóð ekki stunda rannnsóknir í lögsögu sinni?
Má sjálfstæð þjóð ekki stunda rannnsóknir í lögsögu sinni?
En svo má líka spyrja. Hverju ætti svo sem að mótmæla? Sjálfstæð þjóð sem hefur viðurværi sitt af fiskveiðum ákveður vísindaáætlun til þess að þekkja betur gang lífkeðjunnar í kring um landið. Skilja betur grundvöll efnahagsstarfsemi sinnar. Það er sett niður vandlega útbúin vísindaáætlun, hún er kynnt í hinu sérkennilega Alþjóðahvalveiðiráði og síðan hafist handa við að framfylgja þessari sömu áætlun. Til þess að hægt sé að ná hinum vísindalegu markmiðum þarf að fella 38 dýr úr stofni sem telur hér á miðunum að lágmarki 43 þúsund dýr? Er eitthvað athugavert við þetta? Erum við kannski ekki í fullum rétti eða dettur einhverjum í hug að hrefnustofninum sé hætta búin?
Til þessarar vísindaáætlunar hefur fullvalda þjóð vitaskuld skýlausan rétt. Og ekki bara það. Okkur ber bókstaflega skylda til að stunda þessar rannsóknir til þess að standa undir nafni sem ábyrg þjóð sem vill nýta sjávarfangið með hámarksafrakstri og á sjálfbæran hátt. Allar þessar áætlanir okkar eru líka í samræmi við alþjóð lög og sáttmála. Við erum einungis að rækja skyldur okkar við okkur sjálf og afkomendur okkar. Kynna okkur forsendur Íslandsbyggðar; sjávarfangið á miðunum í kring um landið. Við höfum vanrækt þennan sjálfsagða þátt alltof lengi illu heilli. Nú erum við loks búin að koma okkur að verki. Og er það þetta sem nytsömu sakleysingjarnir - sem senda uppkokkaðan tölvupóstinn - eru að reyna að koma í veg fyrir?
Hægðarleikur eða eltingarleikur við hvalakúk
Hægðarleikur eða eltingarleikur við hvalakúk
Að vísu eru rétt að nefna að menn hafa líka lagt í það vinnu að kynna fyrir okkur Íslendingum nýjar rannsóknaraðferðir, til þess að þurfa ekki að granda hrefnunum 38. Og hver eru þau heillaráð? Jú. Mikið rétt. Söfnun saursýna úr hvölum!! ? Já í alvöru talað ? söfnun saursýna úr hvölum.
Og nú skulum við gera okkur myndina í hugarlund. Þarna þeysast þeir um Íslandsmið Greenpeace menn og fulltrúar verndunarsjóða höfrunga, hvala og hvað þetta nú heitir allt saman í ægilegum kappleik við hrefnur og aðra hvali og fylgist af nákæmni með iðrum þeirra. Þess yrði vandlega að gæta að aldrei færu hrefnurnar úr augsýn, svo kúkaklessurnar rötuðu örugglega í söfnunarpokana og hægt væri að skrá stund og stað, kennitölu hrefnunnar, stétt hennar og stöðu. Vel má hugsa sé að þessi rannsóknaraðferð hefði sér til ágætis nokkuð, en varla yrði hún kölluð "hægðarleikur".
Vissulega ber þó að þakka mótmælendunum fyrir að færa okkur nokkra skemmtun með hugdettum sínum. Slíkt skal ekki vanþakkað, enda ekki gert hér.
Við höldum okkar striki
Við höldum okkar striki
En sem betur fer eru þetta bara hugarórar ættaðar úr heimasíðum fjandmanna hvalanýtingar. Á meðan halda íslensk stjórnvöld sínu striki og íslenskir vísindamenn sinna vinnu sinni og skyldu að rannsaka lífríkið í kring um Ísland, til þess að styrkja forsendur bættra lífskjara hér á landi. Goluþytur mótmæla má ekki trufla það né slá okkur út af laginu.
Einar K. Guðfinnsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
