Greinar/Ræður

Samfylkingin vildi afnema dagakerfið

1.5.2003

"Hitt hefur ekki farið eins hátt að Samfylkingin lagði fram frumvarp, á 125. löggjafarþingi, þar sem í fyrstu grein er kveðið á um afskriftir, fyrningu, á veiðidögunum hjá svokölluðum dagabátum. Þeir vilja með öðrum orðum afskrifa dagana líka rétt eins og tonnin og kílóin."

Það hefur ekki farið framhjá neinum að Samfylkingin vill afskrifa veiðirétt manna. Jafnt stórra sem smárra útgerða. Þannig eiga útgerðir minni báta með litlar aflaheimildir að keppa við hinar stóru á uppboðsmarkaði með veiðiheimildir og kallast það réttlæti, að sögn talsmanna fyrningar- og afskriftarleiðar.
Hitt hefur ekki farið eins hátt að Samfylkingin lagði fram frumvarp, á 125. löggjafarþingi, þar sem í fyrstu grein er kveðið á um afskriftir, fyrningu, á veiðidögunum hjá svokölluðum dagabátum. Þeir vilja með öðrum orðum afskrifa dagana líka rétt eins og tonnin og kílóin.

Allt er þetta nákvæmlega sett niður. Í fyrstu var ætlunin að skerða dagana um 20 prósent, næsta ár um 25 prósent, þá um 33 prósent og loks um 50 prósent. Að því búnu áttu þessir bátar að fá aflahlutdeild eða kvóta.

Flýtiafskriftaleiðin

Nánar er gerð grein fyrir þessum útfærðu tillögum í athugasemdakafla frumvarpsins. Þar er sagt orðrétt: "Þessi flokkur báta er of smár og með of lítinn hluta aflaheimildanna til að skynsamlegt sé að hafa um hann sérreglur. Veiðiréttur hvers báts í þessum flokki er afar takmarkaður og augljóst virðist að þeir verði betur settir í því almenna kerfi sem taka á við". Þetta er mikilvægt að menn hafi nú í huga. Og það sem meira er. Samkvæmt hugmyndum Samfylkingarinnar eiga afskriftir aflaheimildanna hjá skipum með kvóta að taka 10 ár. Í frumvarpi þeirra á Alþingi var hins vegar ráð fyrir því gert að þessi aðlögun tæki bara 5 ár. Menn ættu vera komnir inn í dýrðina dagalausir en með heimild til að bjóða í aflaheimildir í kapp við aðrar útgerðir innan 5 ára. Þvílík rausn!
Með öðrum orðum. Útgerðir með aflakvóta eiga að búa við fyrningu, eða afskriftir. Dagabátarnir eiga að fá yfir sig flýtiafskriftir svo sem skemmstan tíma taki að útrýma klukkustunda- og dagafyrirkomulagi við fiskveiðar.

Við höfum styrkt dagakerfið - þeir vilja ekki sjá það

Við höfum hins vegar á þessu kjörtímabili verið að styrkja forsendur þessa kerfis. Horfið hefur verið frá því að mæla sóknareiningarnar í dögum. Nú eru þær mældar í klukkustundum. Þetta fyrirkomulag er manneskjulegra og betra fyrir þá sem þessar veiðar stunda. Hópi sjómanna var síðan gefinn kostur á að stunda útgerð sína innan þessa fyrirkomulags.
Það var þetta kerfi sem þeir samfylkingarmenn vildu afnema og setja inn á uppboðsmarkaðinn. Sem betur fer var því afstýrt. En í rauninni var ekki að undra þótt þeir samfylkingarmenn vilji dagakerfið (klukkustundakerfið) feigt. Þeir hafa nefnilega kveðið upp úr um það að "niðurstaða þingflokks Samfylkingarinnar sé sú að hið pólitíska verkefni nú sé að leysa eignarhaldsdeiluna (um fiskveiðistjórnun, innsk. mitt EKG) á grundvelli aflamarkskerfisins" - Þeir vilja sem sagt ekki sjá neitt daga- eða klukkustundakerfi við fiskveiðar. Þeir vildu útrýma því.

Eftir Einar K. Guðfinnsson

Höfundur er alþingismaður.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica