Greinar/Ræður

Of mikið til landsbyggðar - segir Össur

13.2.2003

ÁKVÖRÐUN ríkisstjórnarinnar um aukin framlög til vegamála hefur almennt verið tekið vel. Með einni undantekningu þó. Mikilvægri undantekningu. Össur Skarphéðinsson, hinn glaðsinna formaður Samfylkingarinnar, hefur allt á hornum sér í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag, og finnur þessari ákvörðun flest til foráttu. Og hvað ætli ergi formanninn nú á þorranum?
Jú, það fer ekki á milli mála. Honum finnst hlutur landsbyggðarinnar í vegaframkvæmdunum sem framundan eru vera of stór. Það var og. Hann orðar þessa skoðun sína að vísu aðeins klókindalegar og talar um að hlutur höfuðborgarsvæðisins sé of rýr. En það gildir einu. Merkingin er skýr. Blaðið hefur eftir honum: "Hann (þ.e. Össur) segir að þó það sé alveg ljóst að taka þurfi til hendinni á landsbyggðinni til að treysta atvinnulífið þar þá sé eigi að síður ljóst að hlutfallið milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins, eins og það birtist í áætlun ríkisstjórnarinnar um auknar vegaframkvæmdir, sé óviðunandi að sínum dómi."

Þá höfum við það. Athyglisvert er hins vegar að aðrir þeir sem hafa tjáð sig um þessi mál, hafa ekki farið niður á það plan héraðarígs, eins og þarna birtist. Við sem á landsbyggðinni búum gleðjumst yfir okkar hlut - og því að ráðist verði í nauðsynlegar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Gildir þá einu hvort menn búi austan lands eða vestan. Á höfuðborgarsvæðinu hefur maður fundið góðan skilning á nauðsyn vegagerðar á landsbyggðinni jafnframt því að unnið sé að samgöngubótum í helsta þéttbýli landsins. Nú hefur hins vegar birst ein undantekning frá þessum viðhorfum. Talsmaður Samfylkingarinnar - sjálfur formaðurinn. Þetta er athyglisvert. Samfylkingin hefur talað.

Eftir Einar K. Guðfinnsson

Höfundur er alþingismaður.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica