Greinar/Ræður

Um svargrein án innihalds

6.2.2003

"Stærsti tittlingaskítur í sögu lýðveldisins."

GÍSLI S. Einarsson alþingismaður skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðið sl. laugardag. Greinin er svar við grein undirritaðs í sama blaði þriðjudaginn 28. janúar sl. Athyglisverð er grein Gísla fyrir þeirra hluta sakir að þrátt fyrir yfirlýstan tilgang er innihald hennar svo óralangt sem hugsast getur frá því að vera efnislegt svar við grein minni. Hún er því svargrein án innihalds.
Í grein minni var fjallað um vegamál á Vestfjörðum að gefnu tilefni úr fyrri skrifum þingmannsins. Rakti ég efnislega hvernig á síðustu árum hefðu orðið gríðarlegar breytingar á þeim sviðum. Var vakin athygli á því að 10,6 milljörðum króna hefði verið varið til vegamála í kjördæminu frá 1991 sem eru mikið fé. Þar af um 5,5 milljarðar vegna Vestfjarðaganganna. Eigi að síður lýsti ég þeirri skoðun minni að við þyrftum meira fé á næstu árum til þess að koma þéttbýlisstöðunum í viðunandi akvegasamband með uppbyggðum og malbikuðum vegum.

Þegar Gísli víkur að þessum málflutningi mínum í grein sinni talar hann um tittlingaskít. Það var og. Þessir ríflegu tíu milljarðar eru þá sennilega orðnir stærsti tittlingaskítur í sögu lýðveldisins, að minnsta kosti.

Um greinina þarf því í rauninni ekki að fara fleiri orðum. Hún er sérstæð fyrir að vera meint svar við málflutningi, án þess að tæpa á efnisatriðum. Slíkar greinar eru ekki algengar í blöðum landsins og verðskulda fyrir vikið sérstakan sess - í gleymskunnar dái.

Eftir Einar K. Guðfinnsson

Höfundur er alþingismaður.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


 
 

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.




 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.