Niðurgreiðsla á húshitun - mikilvæg kjarabót
Það er ástæða til þess að fagna því, segir Einar K. Guðfinnsson, að þetta sjálfsagða réttlætismál er nú í höfn.
UM þessar mundir eru þúsundir Íslendinga líklega að ljúka útfyllingu eyðublaðs til þess að tryggja sér áframhaldandi niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði. Kemur það í kjölfar lagabreytingar sem gerð var á síðasta ári varðandi fyrirkomulag þeirra hluta og sem var gott og skynsamlegt skref. Einn þeirra þátta sem ástæða er til að vekja athygli á, er ákvæði sem felur í sér möguleika fólks sem ekki nýtur orku frá orkufyrirtækjunum, til þess að njóta niðurgreiðslna og fá þannig orku á lægra verði. Er hér um að ræða mikið réttlætismál, sem snertir ekki stóran hóp fólks, en sem hefur hins vegar búið við sligandi kostnað að þessu leytinu. Síðustu misserin hafa þessir íbúar landsins orðið að taka á sig gríðarlegar verðhækkanir á olíu fram til þessa. Senn verður ráðin bót á þessu ástandi.

Þrefaldur hús- hitunarkostnaður
Undirritaður hreyfði þessu máli með fyrirspurn á Alþingi 21. febrúar í fyrra. Þar grennslaðist ég fyrir um hvort til stæði með einhverjum hætti að mæta vanda þessara þegna, sem ekki áttu margra kosta völ þegar skriða alþjóðlegra verðhækkana á olíu í bland við gengisþróunina helltist yfir þá. Í svari iðnaðarráðherra kom meðal annars fram að fjöldi lögbýla sem hvorki hafi heimarafstöðvar né aðgang að samveitu orkufyrirtækjanna séu 45. Húshitunarkostnaður þeirra nam á þessum tíma nær þreföldum kostnaði fólks á RARIK-svæðinu við húshitun. Þykir þó flestum nóg um húshitunarkostnaðinn sinn.
Nánar tiltekið sagði ráðherrann að orkukostnaður býlis sem þyrfti að nota 32.800 kwst. við beina hitun væri 222 þúsund krónur á ári ef olía væri notuð til kyndingarinnar. Áætlaður kostnaður við að kaupa orkuna frá RARIK við sambærilega notkun væri á hinn bóginn 80 þúsund krónur.
Sjálfsagt réttlætismál
Nú sér fyrir endann á þessu. Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi hinn 30. apríl sl. var opnað fyrir niðurgreiðslur til handa þeim sem neyðast til að kynda hús sín með olíu. Í lögunum er rétturinn til slíkrar niðurgreiðslu orðaður svo: "Þegar íbúð, sem hvorki er á veitusvæði hitaveitu né tengist raforkukerfi, er hituð með olíu. Einnig íbúðir hitaðar með olíu sem tengjast einangruðu raforkukerfi þar sem meiri hluti raforkuvinnslunnar er með eldsneyti."
Það er ástæða til þess að fagna því að þetta sjálfsagða réttlætismál er nú í höfn. Sannleikurinn er sá að staða þeirra íbúa landsins sem bjuggu við ofurþungan húshitunarkostnað vegna olíukyndingarinnar hafði legið mjög í láginni í allri umræðunni; raunar var tæplega á hann minnst opinberlega. Athyglin beindist að bensínverði almennings, orkukostnaði atvinnulífsins og þeim kostnaði sem allur fjöldinn varð fyrir. Minna fór fyrir umræðu um aðstæður þess litla minnihluta sem hafði orðið að axla hlutfallslega langþyngstu byrðarnar - fólkið sem nauðugt viljugt var með olíukyndinguna.
Ýtt við málinu
Í svari ráðherra við fyrirspurninni frá 21. febrúar í fyrra kom fram að þær upplýsingar sem teknar hefðu verið saman vegna fyrirspurnarinnar hefðu ýtt við málinu og komið því á hreyfingu. Nefnd sem vann að heildarlöggjöf um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar fékk það síðan til frekari úrlausnar og skilaði tillögum sem nú eru orðnar að lögum. Skjót viðbrögð stjórnvalda vegna ábendinga um þessi mál eru því þakkarverð.