Greinar/Ræður

Samstarf að loknum lygabrigslum?

10.4.2002

Í gegnum svona blekkingarvefi, segir Einar K. Guðfinnsson, er auðvelt að sjá.

ÓVANALEG stóryrði og mikil harka einkenndu umræður um virkjunarmálin á Alþingi á dögunum. Þingmenn vinstri grænna fóru þar fremstir í flokki og báru ráðherra Framsóknarflokksins ótrúlega þungum sökum. Formaður Framsóknarflokksins var þannig ekki í vafa þegar hann hafði hlýtt á málflutning þingflokksformanns vinstri grænna: "En að koma hingað og bera á borð að hann sé sjálfskipaður fulltrúi sannleikans en við hin öll fulltrúar lyginnar, eins og hann segir hér, er honum ekki til sóma og bæri að sjálfsögðu að víta þingmanninn í eitt skipti enn fyrir slík ummæli."

20 ára tugthúsvist

Athyglisvert var einnig að í ályktun þingflokks VG frá 3. apríl sl. var vikið að því að "setja beri ákvæði í lög sem taka af skarið um að það sé saknæmt og refsivert að leyna Alþingi og þingnefndir upplýsingum eða greina þeim rangt frá". - Hér fer ekkert á milli mála. Þessi tilvitnuðu orð koma fram í kjölfar mikillar umræðu af hálfu þingmanna flokksins um að iðnaðarráðherra hafi leynt þingið upplýsingum - staðhæfing sem fulltrúar allra annarra flokka í iðnaðarnefnd Alþingis báru til baka. Og hverjir eiga að hafa gerst sekir um blekkingariðjuna. Því svarar þingflokksformaður VG: "...það (eru) Íslendingar, íslensk stjórnvöld og fulltrúar Íslendinga í þessum viðræðum, sem hafa haft í frammi blekkingar við þjóðina á Alþingi." Formaður vinstri grænna hnykkti á þessu sjónarmiði þingflokks síns og sagði skömmu síðar í ræðu á Alþingi: "Ég fullyrði að í öllum nálægum þjóðþingum, rótgrónum þingræðisríkjum, væri svona atburður litinn mjög alvarlegum augum og víða er það þannig að það er saknæmt og refsivert svo nemur jafnvel allt að tuttugu ára fangelsi að greina þingnefndum rangt frá eða villa fyrir þeim með röngum upplýsingum."

Búa sig í nýtt skart

Þetta er afskaplega athyglisverður málflutningur, einkum þegar hann er skoðaður í samhengi umræðunnar og með hliðsjón af öðrum pólitískum viðburðum í þjóðfélaginu. Einmitt á sömu stundu og þessi orð eru látin falla í sölum Alþingis stritast fulltrúar VG við að búa sig í nýtt skart. Þeir eru nú í óða önn við að undirbúa sveitarstjórnarkosningar, innvígðir í sameiginleg framboð með Framsóknarflokknum og öðrum vinstriflokkum. Hæst ber vitaskuld R-listasamstarfið í Reykjavík, en sama eða svipað er upp á teningnum í fleiri sveitarfélögum úti um landið. Það er því ekki að undra þótt margir efist um heilindin, þegar það er reynt að telja fólki trú um ágæti slíks samstarfs. Menn sem á einum vettvangi úthrópa fólk með hrakyrðum verða ekki ýkja trúverðugir þegar þeir mæra samstarf við það sama fólk á öðrum vettvangi. Á góðri og gildri íslensku heitir svoleiðis háttalag hræsni, tvískinnungsháttur eða skinhelgi. Í gegnum svona blekkingarvefi er auðvelt að sjá. Það er einfaldlega ekki nóg að breiða yfir nafn og númer. Eða finnst mönnum líklegt að slíkt samstarf endist?

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica