Greinar/Ræður

Gömlu baráttumáli siglt í höfn

6.2.2002

Enginn vafi er á því, segir Einar K. Guðfinnsson, að þessi nýju lög styrkja mjög grundvöll þessa útgerðarforms og treysta forsendur þess.

MIKIÐ framfaramál er nú í höfn, með samþykkt Alþingis á frumvarpi sjávarútvegsráðherra um málefni svokallaðra dagabáta. Enginn vafi er á því að þessi nýju lög styrkja mjög grundvöll þessa útgerðarforms og treysta forsendur þess.
Þegar fjallað var um málefni svo-kallaðra krókaflamarksbáta á haustmánuðum á Alþingi kom staða dagabátanna til umræðu. Ljóst var að treysta þyrfti rekstrarforsendur þessa útgerðarflokks og gera breytingar á rekstrarumhverfi hans. Lögðum við þingmenn í meirihluta sjávarútvegsnefndar í nefndaráliti okkar áherslu á að það yrði gert fyrir 1. febrúar nk., enda ljóst að mál þessara báta yrðu ekki leidd til lykta fyrir áramót. Nú hefur verið við það staðið og er það í senn mikilvægt og ánægjulegt.

Engum nema ofurmennum ætlandi var

Gamalt baráttumál smábátasjómanna er leitt í lög með þessari breytingu. Horfið er frá því að sóknareiningin sé sólarhringur. Þess í stað verður sóknareiningin klukkustund. Þetta er mikið réttlætis- og framfaramál. Fyrra fyrirkomulag leiddi til ofurkapps. Menn stóðu við færin í heilan sólarhring án hvíldar. Slíkt er engum ætlandi nema ofurmennum. Handfæraveiðarnar hefðu með sama áframhaldi breyst í eðli sínu og einungis orðið á færi þeirra yngstu og hraustustu og það einungis um skamma hríð. Þetta fyrirkomulag bauð líka hættunni heim, þar sem menn fóru ekki í land þótt brældi, fyrr en í fulla hnefana.
Breytingin nú leiðir til þess að ofurkappið hverfur og öryggi sjómanna eykst. Var það raunar ein af ábendingum stjórnskipaðrar nefndar um öryggismál sjómanna sem skilaði áliti sínu fyrir ekki löngu síðan. Þá má ætla að hráefnismeðferð batni með þessu móti.
Samhliða þessu fær Fiskistofa aðgang að hinu sjálfvirka tilkynningakerfi. Þar með verður tímamæling sóknarinnar gerð alveg örugg og getsakir um að teygst hefði stundum úr sólarhring dagabátanna ættu að heyra sögunni til.

Eykst aflinn?

Skiptar skoðanir eru um hvort þessi lagabreyting muni auka afla þessa bátaflokks. Ýmislegt gæti orðið til þess að sóknin minnki. Í fyrsta lagi það sem hér hefur verið nefnt "ofurkapp" og ætla má að dragi úr. Í annan stað er augljóst að veiðiferðum fjölgar og tíminn sem nýtist við veiðar skerðist af þeim ástæðum. Loks var það þannig í gildandi lögum að menn gátu látið minnka báta sína til þess að verða sér úti um fleiri sóknardaga. Það er nú afnumið og mun því skerða sóknarmöguleika dagabátanna frá því sem ella hefði orðið. Tíminn einn mun hins vegar leiða í ljós nákvæmlega hver þróunin verður. Það er raunar einn megin tilgangur þessara laga að menn sjái betur hver sé hin raunverulega sóknargeta þessa flota, en upplýsingar um það hafa verið á reiki.

Háðir veðri og vindum

Öllum sem til þekkja er þó auðvitað ljóst, að engir bátar eru háðari veðri og vindum, en einmitt litlir handfærabátar. Veðurlag, straumar, hitastig sjávar og fiskigöngur munu mestu ráða um afla þessara báta. Haldi fiskurinn sig á grunnslóðinni og séu veðurskilyrði góð afla þessir bátar vel. Sé tíðarfar óhagstætt, eða sá guli fer utar, minnkar aflinn. Stærri bátar með fjölbreyttari sóknarmöguleika geta fremur aðlagað sig slíkum breytingum, en hinir minni miklu síður.

Knýjandi nauðsyn

Það gerði þessa lagasetningu nú mjög knýjandi, að við lagabreytingarnar varðandi smábáta fyrir jólin var opnað á að floti 78 báta, svokallaðir þakbátar, fengi heimild til þess að velja á milli krókaflamarkskerfis og dagakerfis. Fyrir þá var þess vegna brýnt að forsendurnar og framtíðarskipulagið væri sem ljósast. Fyrir í dagabátaflotanum eru 218 bátar. Eigendur þeirra áttu sannarlega tilkall til löggjafans um að það yrði gert skýrara hver staða þeirra yrði þegar inn í þeirra veiðikerfi kæmu nýir bátar. Það hefur nú verið gert og útgerðarmönnum þessara báta gert auðveldara að móta sér stefnu til framtíðar.
Höfundur er formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis.

Senda grein

Áskrift

Skráning á póstlista.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Engin áskrift er tengd við flokkinn.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica